Innlent

Nafn mannsins sem lést í bílslysi á Suðurlandsvegi

Tryggvi Páll Tryggvason skrifar
Lögreglan á Suðurlandi vinnur að rannsókn málsins.
Lögreglan á Suðurlandi vinnur að rannsókn málsins. Vísir
Maðurinn sem lést í bílslysi á Suðurlandsvegi í gær hét Eiður Jónsson. Hann var 55 ára gamall, fæddur árið 1961, búsettur á Stokkseyri. Hann lætur eftir sig eiginkonu, tvö börn og fimm stjúpbörn.

Slysið var sem fyrr segir á Suðurlandsvegi, skammt frá afleggjaranum að Reynishverfi, vestan Víkur í Mýrdal. Maðurinn var ökumaður vöruflutningabifreiðar með eftirvagn sem fór út af veginum og valt í hádeginu í gær.

Ökumaðurinn var einn í bílnum en tildrög slyssins eru óljós. Lögreglan á Suðurlandi vinnur að rannsókn málsins.


Tengdar fréttir




Fleiri fréttir

Sjá meira


×