Viðskipti erlent

Næstum milljarður iPhone síma selst

Sæunn Gísladóttir skrifar
Samkvæmt spám greiningaraðila mun Apple selja milljarðasta símann í júlí.
Samkvæmt spám greiningaraðila mun Apple selja milljarðasta símann í júlí. Vísir/Getty
Talið er að í sumar mun Apple hafa selt milljarð iPhone síma, og mun því geta sett upp sviða merki og McDonald's sem hefur selt milljarða hamborgara. Það er um það bil einn sími á sjöunda hvern jarðarbúa.

Í lok árs 2015 hafði Apple selt 896 milljónir iPhone síma á átta árum. Samkvæmt spám greiningaraðila á Wall Street mun Apple hafa selt fimmtíu milljónir síma á fyrsta ársfjórðungi 2016 og mun líklega bæta fjörutíu og fjórum milljónum í viðbót við á þessum ársfjórðuni. Samkvæmt því mun Apple selja milljarðasta símann í júlí. Þó að líkur séu á að það náist fyrr.


Tengdar fréttir






Fleiri fréttir

Sjá meira


×