Viðskipti innlent

MP banki einbeitir sér að ríkari viðskiptavinum

Sunna Karen Sigurþórsdóttir skrifar
MP banki.
MP banki.
MP banki hefur ákveðið að hækka mánaðarlegt viðskiptagjald úr 1.100 krónum í 5 þúsund krónur. Það þýðir að árlegt viðskiptagjald hækkar úr 13.200 krónum í 60 þúsund krónur, eða um 355 prósent. Hækkunin tekur gildi 1. ágúst næstkomandi. Til að sleppa við viðskiptagjaldið þarf viðskiptavinur að eiga meira en tvær milljónir í bankanum.

Á vefsíðu bankans segir að þetta sé gert til að tryggja þarfir viðskiptavina og þannig að stefna bankans og styrkleikar falli hvert að öðru.

„Stefna bankans er að vera ekki í þjónustu hins almenna bankaneytanda á markaði. Við veljum viðskiptavini okkar vel. Til að geta þjónustað þá vel þá þurfum við að takmarka þennan fjölda,“ segir Sigurður Atli Jónsson, forstjóri MP banka.

Hann segir að frá árinu 2012 hafi árlega verið farið yfir lista viðskiptavina og þannig reynt að takmarka þennan fjölda. Takmörkunin hafi hins vegar gengið hægt og því hafi verið ákveðið að fara í róttækari aðgerðir.

Þeir aðilar sem hafa haft samband við fréttastofu, viðskiptavinir MP banka, segja bankann hafa boðið fram aðstoð við að færa sig yfir í annan banka. Starfsmaður MP banka segir það þó ekki raunina, en segir lítið mál fyrir viðskiptavini að færa sig annað og þau geti aðstoðað við það, sé þess óskað.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×