Enski boltinn

Mourinho vill styrkja hryggjarsúluna með Stones, Matic og Zlatan

Tómas Þór Þórðarson skrifar
Zlatan til United?
Zlatan til United? vísir/getty
Ensku blöðin hafa ekki undan því að greina frá innkaupalista José Mourinho sem hann ætlar að notast við þegar hann tekur við Manchester United í vikunni.

Eins og fram kom í morgun hittast umboðsmaður Mourinho og stjórnarformaður Manchester United í London í dag og ganga frá málum en eina stóra atriðið sem eftir á að ræða er lengd samningsins hjá Portúgalanum.

Stærsta nafnið sem orðað er við Manchester United þessa dagana er Zlatan Ibrahimovic, en Svíinn magnaði hefur spilað sinn síðasta leik fyrir Paris Saint-Germain þar sem hann kvaddi sem markahæsti leikmaður liðsins og varð Frakklands- og bikarmeistari.

Daily Mail heldur því fram í dag að Mourinho vilji styrkja hryggjarsúluna í United-liðinu með þremur leikmönnum. Það eru miðvörðurinn John Stones hjá Everton, serbneski miðjumaðurinn Nemanja Matic hjá Chelsea og svo Zlatan í framlínuna.

Götublaðið The Sun heldur því svo fram að David De Gea sé ekki á leið frá félaginu heldur sé hann tilbúinn að spila undir stjórn Mourinho á Old Trafford.

Portúgalskir leikmenn eru gjarnan orðaðir við liðin sem Mourinho stýrir og er United sagt vera að landa Andre Carrillo, vængmanni Sporting Lissabon.


Tengdar fréttir

Heimurinn fær að vita hvað stóð í SMS sendingum Mourinho til Evu

Jose Mourinho mun taka við knattspyrnustjórastöðunni hjá Manchester United á næstu dögum en áður en hann getur farið að setja saman liðið sitt á Old Trafford þá á hann enn eftir að gera upp málið sem átti örugglega þátt í endalokum hans á Stamford Bridge.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×