Golf

Mörg góð skor á fyrsta hring á Pebble Beach

John Daly í fallegri lokastöðu á Pebble Beach í dag.
John Daly í fallegri lokastöðu á Pebble Beach í dag. Getty
Bandaríkjamennirnir Justin Hicks og J.B. Holmes leiða eftir fyrsta hring á AT&T Pebble Beach National en þeir komu inn á 64 höggum eða átta undir pari.

Skor kylfinga var alla jafna mjög gott á fyrsta hring en aðstæður til þess að skora vel á hinum sögufræga Pebble Beach velli voru með allra besta móti.

Sjö kylfingar deila þriðja sætinu á sjö undir pari en þar má helst nefna Jim Furyk og hinn litríka John Daly sem getur greinilega enn barist við þá bestu.

Margir sterkir kylfingar eru meðal þátttakenda um helgina, meðal annars bandarísku ungstirnin Jordan Spieth og Patrick Reed en þá er þetta annað mótið sem Dustin Johnson tekur þátt í eftir langt hlé frá golfi. Þeir léku allir ágætlega á fyrsta hring en það kæmi ekki á óvart að sjá allavega einn þeirra berjast um sigur á sunnudaginn.

Mótið er í beinni útsendingu á Golfstöðinni alla helgina en útsendingartíma má nálgast hér.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×