Enski boltinn

Montanier rekinn frá Forest

Stefán Árni Pálsson skrifar
Montanier var ekki lengi í starfi.
Montanier var ekki lengi í starfi.
Enska félagið Nottingham Forest hefur rekið Philippe Montanier sem knattspyrnustjóra liðsins eftir aðeins sjö mánuði í starfi.

Liðið hefur nú tapað fimm leikjum í röð í öllum keppnum en Forrest leikur í ensku B-deildinni og er þar í 20. sæti.

Liðið gerði markalaust jafntefli við Birmingham í deildinni í gær og var það kornið sem fyllti mælinn.

Á blaðamannafundi eftir leikinn vonaðist Montanier að halda vinnunni en það gekk ekki eftir og var hann rekinn aftir leikinn.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×