Innlent

Móðir Ellu Dísar stefnir borginni

Sunna Karen Sigurþórsdóttir skrifar
mynd/ragna erlendsdóttir
Ragna Erlendsdóttir hefur stefnt Reykjavíkurborg og Sinnum heimaþjónustu vegna mistaka starfsmanns sem leiddu til alvarlegra afleiðinga fyrir dóttur hennar, Ellu Dís Laurens. Hún fer fram á fimm milljónir króna í miskabætur.

Í stefnunni segir að í að minnsta kosti fimm skipti hafi verið gerð mistök við umönnun Ellu. Þar segir að fyrsta atvikið hafi átt sér stað í Rjóðrinu í október 2012 og í kjölfarið hafi verið útbúin neyðaráætlun sem gekk í aðalatriðum út á það að ef Ella næði ekki öndun í gegnum öndunartúbu ætti strax að skipta um túbu og hringja í kjölfarið á sjúkrabíl.  Alvarlegasta atvikið hafi þó átt sér stað í Norðlingaskóla 18. mars sem urðu til þess að Ella Dís hlaut heilaskaða.

Samkvæmt Rögnu eru málavextir eftirfarandi:

„Umræddur starfsmaður mun hafa  verið að færa Ellu annað hvort úr hjólastólnum sínum eða sjúkrarúminu yfir í vinnustól Ellu klukkan rúmlega 8 að morgni 18. mars. Við það færðist öndunartúban úr stað sem olli því að Ella fékk ekki öndun. Við það féll súrefnismettun sem mælar hljóta að hafa sýnt en mettunartækið gefur jafnframt frá sér hljóð við slíkar aðstæður. Ljóst er að ummerki um að þetta hafi gerst hljóti að hafa verið augljós því þegar ella missti andann blánaði hún. Umönnunaraðilinn áttaði sig á hvað hefði gerst en brást ekki rétt við. Hún skipti ekki um túbu, gerði ekki hjartahnoð og reyndi ekki „munn við munn“ endurlífgunaraðferðina. Virðist umönnunaraðilinn hafa frosið og hringt á sjúkrabíl í stað þess að fylgja neyðaráætluninni [...] Þegar sjúkrabíllinn kom á staðinn var túban dottin upp úr gatinu í kokinu, Ella var í hjartastoppi og búin að vera án súrefnis í 5-8 mínútur.“

mynd/ragna erlendsdóttir
Í stefnunni segir að Ella hafi ekki verið með heilaskaða fyrir atvikið heldur einungis líkamlegan skaða, þ.e lömun. Fyrir atvikið hafi hún getað tjáð sig með augunum, svipbrigðum og ýmsum líkamshreyfingum. Í kjölfar atviksins hafi hún misst sjón og ekki fær um að tjá sig, ekki með meðvitund, augun opin en föst til vinstri og brást ekki við neinu. 

„Hættan á andnauð var stöðugt fyrir hendi enda hafði slíkt áður átt sér stað hjá umönnunaraðilum á vegum Reykjavíkurborgar. Því gat ekki annað komið til álita en viðbrögð við andnauð væru undirbúinn og sá sem væri með Ellu Dís væri fær um rétt viðbrögð. Hér var líf og heilbrigði í húfi sem er eitt mikilvægasta verndarandlag íslensk réttar,“ segir í stefnunni.

Ella Dís lést á heimili sínu hinn 5. júní síðastliðinn, átta ára gömul.


Tengdar fréttir

Ella Dís er látin

Ella Dís Laurens lést í kvöld á heimili sínu eftir að hafa verið komin heim til sín af sjúkrahúsi í síðustu viku.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×