Erlent

Minnst átta lögregluþjónar féllu í sprengjuárás

Samúel Karl Ólason skrifar
Hörð átök hafa reglulega blossað upp í Cizre.
Hörð átök hafa reglulega blossað upp í Cizre. Vísir/AFP
Að minnsta kosti átta lögregluþjónar létust og 45 særðust þegar bílsprengja sprakk rétt fyrir utan lögreglustöð í bænum Cizre í suðausturhluta Tyrklands í morgun. Sprengingin var öflug og er byggingin, sem er nokkurra hæða, nánast rústir einar. Ekki er vitað hverjir eiga sök á árásinni en tyrkneskir fjölmiðlar telja að um hafi verið að ræða Verkamannaflokk Kúrda, PKK.

PKK hefur barist fyrir sjálfstæði Kúrda í þessum hluta landsins í um þrjá áratugi. Flokkurinn hefur ítrekað beint árásum sínum að tyrkneskum öryggissveitum, allt frá því að vopnahlé fór út um þúfur í júlí 2015.

Enginn hefur þó lýst yfir ábyrgð á árásinni.





Útgöngubanni hefur nokkrum sinnum verið komið á í Cizre á þessu ári vegna aðgerða hersins gegn PKK. Þá segir BBC frá því að Sameinuðu þjóðirnar og mannréttindasamtök hafi farið fram á að rannsókn fari fram á dauða rúmlega hundrað manns sem brunnu inni þar sem þau leituðu skjóls í kjallara í borginni.

Rúmlega 40 þúsund manns hafa látið lífið í frelsisbaráttu PKK síðustu 30 ár og þar af lang mest Kúrdar.

Óttast velgengni Kúrda

Tyrkir réðust inn í Sýrland í fyrrdag til þess að stöðva framsókn sýrlenskra Kúrda (YPG) með landamærum Sýrlands og Tyrklands. Stjórnvöld í Ankara líta á YPG sem hryðjuverkasamtök og segja þau tengd PKK. Óttast er að velgengni Kúrda í Sýrlandi gæti ýtt undir baráttu Kúrda í Tyrklandi.

Sjá einnig: Kúrdar hörfa undan ógnunum Tyrkja

Tyrkir eiga einnig í bardögum við vígamenn Íslamska ríkisins í Sýrlandi þar sem þeir styðja við bakið á uppreisnarhópum. ISIS hafa gert fjölmargar og mannskæðar árásir í Tyrklandi á síðastlinum árum.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×