Handbolti

Miklar breytingar hjá handboltalandsliðinu | Þrír nýliðar og enginn Snobbi í liðinu

Óskar Ófeigur Jónsson skrifar
Snorri Steinn Guðjónsson, Róbert Gunnarsson og Vignir Svavarsson.
Snorri Steinn Guðjónsson, Róbert Gunnarsson og Vignir Svavarsson. Vísir/Getty
Geir Sveinsson, þjálfari íslenska karlalandsliðsins í handbolta, hefur valið hópinn sinn fyrir leiki á móti Tékklandi og Úkraínu í undankeppni EM 2018 en þeir fara fram í landsleikjahléinu í byrjun næsta mánaðar.

Geir valdi 21 leikmann í hópinn en miklar breytingar eru á landsliðinu að þessu sinni. Snorri Steinn Guðjónsson og Alexander Petersson gefa ekki kost á sér í landsliðið og þá eru þeir Róbert Gunnarsson og Vignir Svavarsson ekki valdir í hópinn.

Geir velur þrjá nýliða í hópinn og þá eru í hópnum nokkrir leikmenn sem eiga aðeins örfáa landsleiki að baki eins og þeir Arnar Freyr Arnarsson, Theodór Sigurbjörnsson og Janus Daði Smárason.

Nýliðarnir eru Grétar Ari Guðjónsson, sem er í láni hjá Selfossi frá Haukum, Ómar Ingi Magnússon, fyrrum leikmaður Vals sem spilar nú með Aarhus Håndbold í Danmörku og Geir Guðmundsson sem spilar með Cesson Rennes í Frakklandi.

Herbergisfélagarnir Snorri Steinn Guðjónsson og Róbert Gunnarsson, sem hafa gengið undir gælunafninu Snobbi, eru hvorugur með en þeir hafa verið aðalleikstjórnandi og aðallínumaður íslenska liðsins í meira en áratug.

Íslenska liðið mætir Tékklandi í Laugardalshöllinni miðvikudaginn 2. nóvember og spilar síðan við Úkraínu úti í Úkraínu þremur dögum síðar. Íslenska liðið er einnig með Makedóníu í riðli en leikirnir við Makedóníumenn fara fram í maí á næsta mánuði.



Hópurinn er eftirfarandi:

Markmenn:

Aron Rafn Eðvarðsson, SG BBM Bietigheim

Björgvin Páll Gústavsson, Die Bergische Handball Club

Grétar Ari Guðjónsson, Selfoss

Aðrir leikmenn:

Arnar Freyr Arnarsson, IFK Kristianstad

Arnór Atlason, Aalborg Handball

Arnór Þór Gunnarsson, Die Bergische Handball Club

Aron Pálmarsson, MKB Veszprém

Ásgeir Örn Hallgrímsson, Nimes

Bjarki Már Elísson, Fuchse Berlin

Bjarki Már Gunnarsson, EHV Aue

Geir Guðmundsson, Cesson Rennes

Guðjón Valur Sigurðsson, Rhein-Necker Löwen

Guðmundur Hólmar Helgason, Cesson Rennes    

Gunnar Steinn Jónsson, IFK Kristianstad    

Janus Daði Smárason, Haukar

Kári Kristján Kristjánsson, ÍBV

Ólafur Andrés Guðmundsson, IFK Kristianstad

Ómar Ingi Magnússon, Aarhus Håndbold    

Rúnar Kárason, TSV Hannover-Burgdorf

Stefán Rafn Sigurmannsson, Aalborg Handball    

Theodór Sigurbjörnsson, ÍBV




Fleiri fréttir

Sjá meira


×