Innlent

Metanstrætó til Akureyrar

Benedikt Bóas Hinriksson skrifar
Eiríkur Björn Björgvinsson og Bjarni Arason skrifa undir samninginn.
Eiríkur Björn Björgvinsson og Bjarni Arason skrifa undir samninginn. Mynd/Ragnar Hólm Ragnarsson
Bæjarstjórinn á Akureyri, Eiríkur Björn Björgvinsson, og Bjarni Arason, sölustjóri hjá Kletti sölu og þjónustu, undirrituðu í gær samning um kaup Akureyrarbæjar á þremur nýjum metanknúnum strætisvögnum.

Fyrsti vagninn verður afhentur í mars. Bærinn leigir hann til eins árs meðan reynsla af notkun á metanstrætó í bænum er metin en að ári liðnu verður gengið frá kaupunum ef allt gengur að óskum. Næsti vagn verður keyptur níu mánuðum eftir afhendingu þess fyrsta og sá þriðji eigi síðar en í maí 2018. Samkvæmt tilkynningu frá Akureyrarbæ eru kaupin á metanvögnunum einn af mörgum þáttum í að ná því markmiði bæjarstjórnarinnar að gera Akureyri að kolefnishlutlausu samfélagi innan fárra ára.

Hleðslustöð fyrir metanbíla hefur verið komið upp við Súluveg og hleðslustöðvar fyrir rafbíla eru nú á þremur stöðum á Akureyri. Þá leggi bærinn á það áherslu að bílafloti hans verði smám saman allur knúinn endurnýtanlegum eða umhverfisvænum orkugjöfum. 

Fréttin birtist fyrst í Fréttablaðinu




Fleiri fréttir

Sjá meira


×