Viðskipti innlent

Mesta velta ársins í Kauphöllinni

Sæunn Gísladóttir skrifar
Velta með skuldabréf var sú mesta á árinu og nam 48,2 milljörðum króna.
Velta með skuldabréf var sú mesta á árinu og nam 48,2 milljörðum króna.
Mesta velta ársins var í Kauphöllinni í dag en hún nam 48,8 milljörðum króna.

Velta með skuldabréf var sú mesta á árinu og nam 48,2 milljörðum króna. Velta með hlutabréf nam 660 milljónum króna. Veltumet frá því í byrjun nóvember var slegið í dag. 

Mikið var um lækkanir á markaðnum og lækkaði úrvalsvísitalan um 0,34% og var lokagildi hennar 1.809,70 stig. Aðalvísitala skuldabréfa hækkaði um 0,06 prósent í dag og var lokagildi hennar 1.156,26 stig.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×