Fótbolti

Messi ætlar að vinna Þjóðverja fyrir Liam og Noel

Henry Birgir Gunnarsson skrifar

Oasis-bræðurnir, Noel og Liam Gallagher, ættu að fylgjast vel með leik Argentinu og Þýskalands í átta liða úrslitum HM því Lionel Messi ætlar að hefna sín á Þjóðverjum fyrir þá.

Messi hefur uppgötvað tónlist Oasis á HM og hlustar ekki á neitt annað fyrir leiki.

"Ef Gallagher-bræður elska enska landsliðið eins mikið og þeir elska Man. City þá getið þið sagt þeim að ég mun gera allt sem ég get til þess að leggja liðið sem sló England út úr HM," sagði Messi sem langar mikið að hitta þá bræður.

"Kannski getum við allir saman horft á leik með Man. City," sagði Messi léttur.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×