Golf

McIlroy ver titilinn á PGA-meistaramótinu

Kristinn Páll Teitsson skrifar
Einn af bestu kylfingum heimsins í dag.
Einn af bestu kylfingum heimsins í dag. Vísir/getty
Rory McIlroy, norður-írski kylfingurinn, lauk æfingarhring á Whistling Straits vellinum um helgina en hann var nokkuð bjartsýnn á að hann myndi taka þátt á PGA-meistaramótinu sem hefst á fimmtudaginn. McIlroy hefur titil að verja en hann varð meistari árið 2012 sem og 2014.

Óvissa var um þátttöku Rory á mótinu eftir að hann sleit liðbönd í fótbolta með vinum sínum þann 4. laugardaginn síðastliðna. Missti hann tækifærinu að verja titilinn á Opna breska meistaramótinu fyrir vikið en í fjarveru hans stóð Zach Johnson uppi sem sigurvegari.

McIlroy hefur undanfarnar vikur stefnt á að taka þátt í meistaramótinu en hann hefur ekki tekið þátt í móti í rúman mánuð. Hefði hann ekki tekið þátt að þessu sinni hefði ungstirnið Jordan Spieth átt möguleikann á því að slá hann af toppi heimslistans í golfi en norður-írski kylfingurinn virðist ekki ætla að gefast upp án þess að berjast.

„Þetta gekk vel, það var gott að fá tilfinningu fyrir vellinum í dag. Ökklinn er mun betri, ég stefndi á að vera kominn aftur út á völl eftir fimm vikur og það var hárrétt metið hjá mér. Ég var örlítið stífur í byrjun en ég er annars í góðu standi.“




Fleiri fréttir

Sjá meira


×