Golf

McIlroy og Spieth í sama ráshóp á PGA-meistaramótinu

Kári Örn Hinriksson skrifar
Bradley og Kaymer þekkjast vel.
Bradley og Kaymer þekkjast vel. Getty
Búið er að raða í ráshópa fyrir síðasta risamót ársins, PGA-meistaramótið, en þar hefur Norður-Írinn Rory McIlroy titil að verja.

McIlroy mun tía upp á morgun ásamt Jordan Spieth en þeir félagar eru tveir bestu kylfingar heims. Zach Johnson, sem nýlega sigraði á Opna breska meistaramótinu spilar einnig með þeim en þeir fara út 18:20 að íslenskum tíma.

Tiger Woods er með að þessu sinni eftir góða frammistöðu á Quicken Loans National mótinu fyrir tveimur vikum.

Hann spilar með Keegan Bradley og Þjóðverjanum Martin Kaymer en þeir tveir eru ekki bestu vinir eftir að sá síðarnefndi ásakaði Bradley um að spila allt of hægt á US Open í fyrra.

Á undan þeim fara Jason Day, Dustin Johnson og Rickie Fowler saman út en margir spá Dustin Johnson sigri um helgina eftir að hafa rétt misst af sigrinum á sama velli árið 2010.

Bein útsending frá PGA-meistaramótinu á Whistling Straits hefst á Golfstöðinni klukkan 18:00 á morgun.




Tengdar fréttir

McIlroy ver titilinn á PGA-meistaramótinu

Norður írski kylfingurinn staðfesti að hann myndi verja titlinn sinn á Whistling Straits en hann hefur ekkert leikið undanfarnar fimm vikru eftir að hafa slitið liðbönd í byrjun júlí.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×