Golf

McIlroy ætlar sér að ná efsta sæti heimslistans um helgina

Eiríkur Stefán Ásgeirsson skrifar
Rory McIlroy hefur spilað vel síðustu mánuðina.
Rory McIlroy hefur spilað vel síðustu mánuðina. Vísir/Getty
Rory McIlroy hefur augastað á efsta sæti heimslistans í golfi og ætlar sér að ná því af Ástralanum Jason Day um helgina.

McIlroy hefur ekki verið á toppi heimslistans síðan í ágúst í fyrra en Day hefur einokað toppsætið síðan í mars á þessu ári.

Lokamót Evrópumótaraðarinnar fer fram í Dubai um helgina og þó svo að McIlroy eigi lítinn möguleika á að verja meistaratitilinn sem hann vann á mótaröðinni í fyrra gæti sigur á mótinu dugað til að komast aftur á topp heimslistans.

„Það verður heilmikið í húfi hjá mér þessa vikuna,“ sagði McIlroy við Sky Sports í gær. „Ef ég vinn þetta mót næ ég að enda árið í efsta sæti heimslistans sem er mikil hvatning fyrir mig.“

Sem stendur er McIlroy í fjórða sæti peningalistans á Evrópumótaröðinni. Svíinn Henrik Stenson eru efstir en á eftir þeim koma Danny Willett frá Englandi og Alex Noren frá Svíþjóð.

Noren bar sigur úr býtum á Nedbank-mótinu í Suður-Afríku en mótinu lauk í gær. McIlroy sleppti því móti en þarf ekki að örvænta þar sem hann fagnaði sigri í FedEx Cup, úrslitakeppni PGA-mótaraðarinnar. McIlroy fékk tíu milljónir Bandaríkjadala fyrir þann árangur.

„Ég sé ekki eftir [að hafa misst af Nedbank-mótinu]. Það hefði verið önnur saga ef ég hefði ekki unnið FedEx-bikarinn en ég hef unnið titilinn á Evrópamótaröðinni áður og geri það vonandi aftur síðar,“ sagði McIlroy.

„Ég held að Henrik sé líklegastur í ár. Hann hefur verið að spila mjög vel. Völlurinn hentar honum betur en Danny.“

DP World Tour Championship, lokamót Evrópumótaraðarinnar, hefst í Dubai á fimmtudag en síðustu tveir keppnisdaganir, á laugardag og sunnudag, verða sýndir í beinni útsendingu á Golfstöðinni.


Tengdar fréttir

Bandaríkin sigurvegarar á heimavelli í Ryder-bikarnum

Bandaríska sveitin hafði betur gegn Evrópu í Ryder-bikarnum í golfi sem lauk rétt í þessu en þetta er í fyrsta skiptið síðan 2008 sem Bandaríkin hafa betur í þessu sögufræga golfmóti.

McIlroy sýndi styrk sinn í bráðabana

Rory McIlroy varð hlutskarpastur á Tour Championship mótinu í gær. Þetta var lokamótið á PGA-mótaröðinni en leikið var á East Lake Golf Club í Atlanta.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×