Matur

Matur

Girnilegar uppskriftir úr öllum áttum og fréttir tengdar mat.

Fréttamynd

Sjálfsafgreiðslukassarnir skili ekki lægra vöru­verði

Framkvæmdastjóri Bónuss segist ekki geta fækkað starfsfólki þrátt fyrir tilkomu sjálfsafgreiðslukassa og þar af leiðandi lækki ekki vöruverð vegna þess. Nú þegar sé álagning á vörurnar svo lág að ef vöruverð yrði lækkað um þrjú prósent væri félagið nærri gjaldþroti.

Viðskipti innlent

Fréttir í tímaröð

Fréttamynd

Turninn á Lækjar­torgi fær nýtt líf

Söluturninn á Lækjartorgi fær nýtt líf í næstu viku en til stendur að opna þar ísbúðina Ísfabrikkuna. Nýir eigendur stefna á að framleiða og selja „fyrsta flokks ís úr alvöru hráefnum“ en einnig verður boðið upp á kaffi til sölu.

Viðskipti innlent
Fréttamynd

Fiski­kóngurinn fagnar stækkun með glæsi­legri opnunar­hátíð

Í dag laugardag er stór dagur hjá Fiskikóngurinn á Sogavegi í Reykjavík þar sem efnt verður til opnunarhátíðar í tilefni af stækkun verslunarinnar. Gestum verður boðið upp á alls kyns tilboð, humarsúpusmakk og skemmtilega stemningu sem auðvitað er í anda mannsins á bak við fyrirtækið, Kristjáns Berg, best þekktur sem Fiskikóngurinn sjálfur.

Lífið samstarf
Fréttamynd

Kaffi­tár hressir ferða­langa sem stoppa á Olís

Nýverið tóku Olís og Kaffitár höndum saman í að bæta þjónustu við viðskiptavini á ferðinni sem elska gott kaffi. Með uppsetningu Barista-kaffivéla í Norðlingaholti, Höfn, Selfossi, Borgarnesi, Hellu og nú nýverið á Húsavík, fá viðskiptavinir Olís aðgang að fyrsta flokks kaffihúsaþjónustu.

Samstarf
Fréttamynd

„Þú þarft alltaf að vita, öryggisins vegna, hvar næsta klósett er“

Hildur Dís og Hjalti eru bæði með meltingarsjúkdóm sem getur valdið því að þau þurfa að fara á salernið með stuttum fyrirvara. Bæði greindust þau nokkuð ung en afleiðingar sjúkdómanna eru ólíkar. Hjalti er til dæmis bestur á einföldu mataræði en bæði segja þau streitu og álag verulegan áhrifavald. 

Innlent
Fréttamynd

Hvað veistu um… pasta?

Líklegt má telja að pasta sé á borðum fjölmargra Íslendinga í dag enda auðvelt að elda og hentar vel með margs konar sósum, grænmeti, kjöti eða sjávarfangi.

Lífið
Fréttamynd

Eldpiparshausar í átkeppni

Það var líf og fjör í Gamla bíói á dögunum þegar fyrsta eldpiparshátíðin var haldin hérlendis.  Íslenskir smáframleiðendur, handverksfólk og eldpiparhausar fylltu staðinn með gleði, spennu og ástríðu fyrir eldpipar.

Lífið
Fréttamynd

Hand­tekinn eftir að rottu­eitur fannst í barna­mat

Karlmaður á fertugsaldri var handtekinn í Austurríki eftir að rottueitur fannst í barnamat frá HiPP. Forstjóri fyrirtækisins segir að maðurinn hafi sent kröfu um háa fjárhæð á netfang sem er einungis skoðað á tveggja vikna fresti.

Erlent
Fréttamynd

Matar­æði og hjartaheilsa

Hjarta- og æðasjúkdómar er samnefni yfir þá sjúkdóma sem verða í hjarta og æðarkerfi svo sem: hjartaáföll, kransæðasjúkdómar, hjartabilun, heilablóðfall, æðakölkun, blóðtappar, háþrýstingur og hjartsláttartruflanir.

Skoðun
Fréttamynd

Fram­taks­sjóður að ganga frá kaupum á sam­lokurisanum Sóma

Samlokurisinn Sómi, sem hefur vaxið ört á undanförnum árum og árlegar tekjur samstæðunnar nema orðið um sex milljörðum, er að skipta um eignarhald en unnið er núna að því að ljúka við sölu á félaginu til innlends framtakssjóðs sem er að mestu í eigu lífeyrissjóða.

Innherji
Fréttamynd

Fjár­sjóðurinn í matarkistunni

Matur er á vörum okkar daglega, enda grunnurinn að heilsu okkar og næringu. Þá væru viðburðir, samkomur og fjölskylduboð lítilfjörleg án hans. Matur er allt í kring um okkur og með auknum ferðamanna straumi hefur norræn og íslensk matarmenning fengið byr undir báða vængi og hróðurinn farinn að berast um allan heim.

Skoðun
Fréttamynd

Eru ekki að sjá „þessa hol­skeflu“ verð­hækkana eins og fyrir fjórum árum

Þótt tilkynningar um verðhækkanir séu farnar að berast í auknum mæli frá birgjum þá er ástandið enn sem komið er ekkert í líkingu við það sem var vegna hækkunar á orku- og hrávöruverði eftir innrás Rússa í Úkraínu fyrir fjórum árum, að sögn forstjóra Haga. Nýtt samstarf við danskan smásölurisa mun í senn lækka verð í verslunum Haga og ætti jafnframt að bæta framlegðina.

Innherji
Fréttamynd

Ný matarstefna Reykja­víkur­borgar – hvað skiptir raun­veru­lega máli?

Ný matarstefna Reykjavíkurborgar er bæði metnaðarfull og tímabær, og í raun mikilvægt skref í átt að markvissari stefnumótun um mat, heilsu og sjálfbærni. Stefnan er umfangsmikil, með fjölmörgum aðgerðum sem snúa ekki aðeins að því hvað er á disknum, heldur einnig hvernig matur er framleiddur, eldaður og borinn fram, hver hefur aðgang að honum og hvaða áhrif hann hefur til lengri tíma – bæði á heilsu fólks og umhverfi.

Skoðun
Fréttamynd

Matar­æði stétta­skiptingarinnar: Þegar hollusta verður for­réttindi

Á meðan skólakerfið herðir reglur um hollustu og bannar unnin matvæli til að tryggja heilbrigða framtíð barna okkar, blasir við dapurlegur veruleiki fyrir stóran hóp landsmanna. Fyrir öryrkja, aldraða og láglaunafólk er fersk og óunnin matvara – þar á meðal gott ferskt kjöt – oftast óyfirstíganlegur fjárhagslegur baggi.

Skoðun
Fréttamynd

Sjálfs­mark með „sjúk­lega sam­fylkingar­legu“ kjöt­vöru­banni

Ekki er laust við að borgar­full­trúinn Líf Magneu­dóttir fagni því sem hún kallar „sjálfs­mark“ þegar hún vekur at­hygli á Face­book-færslu Viðreisnar­odd­vitans Bjargar Magnús­dóttur þar sem hún segir „bara svo sjúk­lega sam­fylkingar­legt“ að banna unnar kjöt­vörur í skólum borgarinnar.

Innlent
Fréttamynd

Matarstefnan bara „orð út í loftið“

Næringarfræðingur fagnar viðleitni borgarstjórnar sem hyggst úthýsa unninni kjötvöru úr skólum borgarinnar. Hún segir verkefnið hins vegar algjörlega óútfært og telur það í raun óframkvæmanlegt í náinni framtíð. Mikill meirihluti kjötrétta í skólum sé unnin matvara.

Innlent