Lífið

Marsspá Siggu Kling – Meyja: Talaðu frá hjartanu

Elsku besta meyjan mín. Það var fullt tungl 22. febrúar og það er fullt tungl í meyjarmerkinu. Þetta er svokallað samskiptatungl og það skiptir öllu máli, meyjan mín, að samskiptin séu alveg á hreinu og að þú talir frá hjartanu þínu.

Fallega plánetan Júpíter er í merkinu þínu alveg fram í september og hversu flott er það?

Á því tímabili er mjög mikilvægt fyrir þig að endurskoða starfsframa þinn, laga það sem betur má fara og þetta er líka tímabil ferðalaga því að Júpíter gefur þér kraftinn sem þú þarft til að ljúka hlutum og klára málin. Það er enginn eins fallegur og þú þegar þú veist að þú ert búin að klára allt sem þú þarft að gera í það sinn.

Þú hefur svo marga þætti inni í orkunni þinni. Þú getur verið bæði svo stíf en samt svo mjúk. Bæði svo hvöss og svo blíð. Það gerir þig að karakter sem maður gleymir aldrei!

Með þessa afstöðu plánetanna í kringum þig færðu þann aukakraft til að geta gert það sem þú vilt og þarft að gera og jafnvel gengið á vatni ef það er bara grunnt!

Það er litríkur vinahópur í kringum þig og þú þarft að efla tengslin. Sýndu leiðtogann í þér, því að þar er hæfileikinn þinn!

Ef þú ert á lausu elskan mín, æfðu þig þá í að segja „ég elska þig,” strax og þú hefur tækifæri til.

Hugsaðu líka og gerðu hlutina aðeins öðruvísi og þá mun þér farnast ótrúlega vel í ástardeildinni.

Frægar meyjur: Ragna Lóa Stefánsdóttir íþróttakona, Manuela Ósk fyrirsæta, Björk Eiðsdóttir ritstýra, Andrea fatalistamaður, Claudia Schiffer fyrirsæta, Edda Björgvinsdóttir leikkona, Eva Dögg Sigurgeirsdóttir, ritstjóri og tískugúrú, Herdís Jóhannesdóttir athafnakona, Beyoncé Knowles söngkona, Gylfi Þór Sigurðsson, Eiður Smári Guðjohnsen, Sigrún Ósk Kristjánsdóttir sjónvarpskona, Annie Mist crossfittari, Logi Pedro Stefánsson tónlistarmaður.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×