Mars smákökur

Vísir Jólavefur 01. nóvember 2011 03:13
Mars smákökur

Hér má sjá uppskrift að ljúffengum Mars smákökum sem slá eflaust í gegn yfir hátíðarnar.

370 gr sykur
200 gr hveiti
125 gr smjör
75 gr möndlur (malaðar)
½ dl rjómi



Mars smákökur

Eftirfarandi er sett ofan á:

4 msk rjómi
4 stk Mars (65 g. hvert)
heilar möndlur til skrauts.

Bakstur:

Hnoðið saman hveiti, möndlur, sykur, smjör og rjóma. Hnoðið deigið vel saman. Búið til kúlur úr deiginu og leggið með góðu millibili á bökunarplötu, klædda bökunarpappír. Bakið neðarlega í ofninum við 170°C í 15 mínútur.

Ofan á (Mars bráð):

Bræðið Mars súkkulaðið yfir heitu vatnsbaði, bætið rjómanum saman við og hrærið vel í þar til massinn er orðinn mjúkur. Setjið smávegis á hverja köku með teskeið og þrýstið möndlu ofan á. Best er að gera þetta meðan kökurnar eru ennþá volgar.


Fleiri fréttir - Jólavefur

Ţú ert hér: Forsíđa / Jólavefur / Mars smákökur