Viðskipti innlent

Markmiðið að gera besta leikinn á heimsvísu sem kynnir forritun fyrir krökkum

Ingvar Haraldsson skrifar
Box Island kemur til að byrja með einungis út á Íslandi.
Box Island kemur til að byrja með einungis út á Íslandi. Radiant Games
„Við þurfum að skilja betur hvernig tölvur virka og miklu fyrr,“ segir Vignir Örn Guðmundsson, framkvæmdastjóri tölvuleikjafyrirtækisins Radiant Games sem í gær gaf út sinn fyrsta tölvuleik, forritunarleikinn Box Island sem kenna á krökkum, átta ára og eldri að forrita.

„Forritun skiptir gífurlega miklu máli, það má færa mjög sterk rök fyrir því að forritun sé læsi 21. aldarinnar. Rannsakendur frá Oxford-háskóla spá því að 45 prósent af störfum verði orðin sjálfvirk á innan við 20 árum,“ segir hann.

Leikurinn gerist á ævintýraeyjunni Box Island þar sem spilarar fylgja aðalsöguhetjunni Hero. „Krakkar þurfa að beita grunngildum forritunar og forrita hvaða leið Hero þarf að fara til að komast áfram,“ segir Vignir.

Box Island verður til að byrja með aðeins aðgengilegur á Íslandi en Vignir segir að með haustinu verði leikurinn gefinn út á erlendri grundu.

Vignir Örn Guðmundsson, framkvæmdastjóri Radiant Games.
„Markmiðið hefur alltaf verið að búa til besta leikinn á heimsvísu sem kynnir grunn­gildi forritunar fyrir krökkum,“ segir hann. Þeim hafi þótt umfjöllun og efni um forritun fyrir börn vera ábótavant. Okkur fannst gæðin á þeirri afþreyingu og þeim leikjum sem voru til á heims­vísu ekki nægjanlega mikil.“

Leikurinn kemur út á íslensku sem Vignir segir afar mikilvægt. „Íslenska skiptir máli í svona heilabrjót. Það getur verið aukaflækja að þýða alltaf enskuna fyrir þann sem er kannski ekki alveg kominn með fullt vald á ensku.“

Hann segir kennara hafa sýnt leiknum áhuga og á næstunni sé stefnt að því að skoða hvernig leikurinn geti nýst við kennslu í skólum. Til að byrja með verði horft á almennan markað.

Radiant Games fékk 12,5 milljóna króna árlegan styrk til þriggja ára úr Tækniþróunarsjóði til að vinna að leiknum.


Tengdar fréttir






Fleiri fréttir

Sjá meira


×