Golf

Margir sterkir kylfingar í toppbaráttunni í Texas - Molinari leiðir á Englandi

Ian Poulter er í toppbaráttunni í Texas.
Ian Poulter er í toppbaráttunni í Texas. Getty

PGA-mótaröðin og Evrópumótaröðin berjast um athygli golfáhugamanna þessa helgina en tvö stór mót fara fram á þessum virtu mótaröðum.

Rory McIlroy, besti kylfingur heims, á titil að verja á Wentworth vellinum á Englandi þar sem BMW PGA meistaramótið fer fram en eftir fyrsta hring er hann jafn í 23. sæti á einu höggi undir pari.

Ítalinn Francesco Molinari leiðir mótið á sjö höggum undir pari en þessi frábæri púttari sýndi allar sínar bestu hliðar á flötunum á fyrsta hring í dag.

Á PGA-mótaröðinni á Ástralinn Adam Scott titil að verja er Crowne Plaza Invitational fer fram í Texas en hann hóf titilvörnina á Colonial vellinum með hring upp á tveimur höggum yfir pari og er mjög neðarlega á skortöflunni.

Kevin Na, Ian Poulter, Boo Weekley og Bandaríkjamaðurinn ungi Jordan Spieth leiða mótið eftir fyrsta hring upp á 64 högg eða sex undir pari en margir sterkir kylfingar hófu mótið vel.

Bæði mótin verða í beinni útsendingu á Golfstöðinni um helgina en útsendingartíma má sjá hér.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×