Innlent

Mansalstilfellum fjölgar samhliða auknum ferðamannastraumi

sunna karen sigurþórsdóttir skrifar
Alda Hrönn Jóhannsdóttir, aðallögfræðingur lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu.
Alda Hrönn Jóhannsdóttir, aðallögfræðingur lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu. Vísir/Pjetur
Alda Hrönn Jóhannsdóttir, aðallögfræðingur lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu, segir mansalstilfellum hér á landi fjölga samhliða auknum ferðamannastraumi. Mikilvægt sé að opna umræðuna því slíkir glæpir þrífist best í þögninni.

„Það eru margvíslegar ástæður fyrir þessari fjölgun. Það er til dæmis aukinn ferðamannastraumur til Íslands, og þá er það helst kynlífsmansal því þar sem eftirspurnin er þar er framboðið," segir Alda Hrönn.

Bandaríska utanríkisráðuneytið gaf nýverið út skýrslu þar sem farið er yfir mansal á heimsvísu. Þar kemur fram að Ísland sé áfanga- og viðkomustaður fyrir konur sem hnepptar hafa verið í kynlífsþrælkun sem og fyrir vinnuþræla af báðum kynjum. Alda segir niðurstöður skýrslunnar ekki hafa komið sér á óvart.

„Varðandi vinnuþrælkun þá eru auknar framkvæmdir hér, það vantar vinnuafl á landinu og það vantar ódýrt vinnuafl. Það er verið að flytja inn erlent starfsfólk og þá þarf mikið eftirlit. Þannig að það er aukin áhætta," segir hún.

Sjá einnig:Ísland sagt áfangastaður kynlífsþræla

Tekið er fram í skýrslunni að stjórnvöld hér á landi beiti aðeins lágmarksaðgerðum til þess að bregðast við mansali. Vísað er til þess að undanfarin þrjú ár hafi enginn verið sakfelldur fyrir mansal eða þrælahald og lagt er til að þjálfun og fræðsla lögreglu, saksóknara og dómara verði aukin. Alda segir aukna fræðslu á döfinni, en tekur jafnframt fram að vitundarvakningar sé þörf.

„Við þurfum alltaf að standa okkur betur. Önnur lönd hafa verið í herferðum, einkum gegn mansali, og það er eitthvað sem við sjáum fyrir okkur að verði gert hér, vegna þess að mansal þrífst í þögninni. Við þurfum þess vegna að opna umræðuna og fræða fólk og segja því að það sé mögulega mansal eða vændi í næsta húsi þannig að fólk geti haft augun opin og geti þá brugðist við og tilkynnt til lögreglu."








Tengdar fréttir

Ísland sagt áfangastaður kynlífsþræla

Ísland er áfanga- og viðkomustaður fyrir konur sem hnepptar hafa verið í kynlífsþrælkun sem og fyrir vinnuþræla af báðum kynjum, samkvæmt nýrri skýrslu frá bandaríska utanríkisráðuneytinu.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×