Sport

Manny verður flengdur

Feðgarnir á góðri stund.
Feðgarnir á góðri stund. vísir/getty
Pabbi Floyd Mayweather hefur varað Manny Pacquiao við því að Mayweather hafi aldrei æft eins vel fyrir nokkurn bardaga.

Floyd Mayweather eldri er ekki í nokkrum vafa um að sonur hans muni rota Pacquaio.

„Ég skal bara segja ykkur satt. Floyd hefur verið að æfa meira en vanalega. Það er engin taktík en svona verður þetta. Manny verður rotaður. Hann er bara venjulegur andstæðingur sem verður flengdur," sagði pabbinn kokhraustur.

„Auðvitað tökum við þennan bardaga alvarlega en við munum sjá til þess að hrekja Manny úr bænum. Ég er 110 prósent viss á því að það verður rothögg."

Bardagi þeirra félaga verður í beinni á Stöð 2 Sport um næstu helgi.

Box

Tengdar fréttir

Dýrustu miðarnir kostuðu eina milljón

Miðar á bardaga Floyd Mayweather og Manny Pacquaio fóru loksins í sölu í dag. Ekki seinna vænna því þeir berjast eftir rúma viku.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×