Lífið

Maíspá Siggu Kling – Steingeit: Þarf ekki brúðkaup og allan pakkann þótt þú daðrir smá!

Elsku hjartans Steingeitin mín. Það er svo sannarlega mikið að gerast í kringum þig. Þú ert að hitta svo mikið af nýju fólki og að sjá lífið í miklu meiri lit en þú hefur gert undanfarið. Lífið á eftir að verða þér auðveldara en þú bjóst við þó svo að það sé mikil vinna allt í kring.

Hafðu augun opin fyrir freistingum.

Ef þér finnst eitthvað svo ótrúlegt að það geti varla verið satt, þá er það líklega þannig. Hafðu alla pappíra á hreinu, ekki gefa neitt eftir og vertu ákveðin með áform þín. En það er náttúrulega hvort sem er þú í hnotskurn, hjartans Steingeit!

Fólk kann svo vel við þig, það hreinlega elskar þig og þú ert svo dýrmæt. Þú þarft að sjá það svolítið sjálf og verðleggja þig hærra.

Þú ert svo góð í að hrósa öðrum og byggja upp sjálfstraust annarra að ég myndi bara ráðleggja þér að fara á námskeið hjá sjálfri þér og nýta þessa jákvæðni og hæfileika sem þú ert að deila út, krafturinn er svo sannarlega til staðar!

Þið Steingeitur sem eruð á lausu eigið bara að finna hvað það er dásamlegt um stund að geta daðrað og átt í ástarsamböndum án þess að búast við að gifting og allur pakkinn fylgi í kjölfarið. Þetta er akkúrat góður tími til að leika sér aðeins en hafa samt allt á hreinu.

Ekki láta smá hindranir verða til þess að þú hættir því sem þú varst byrjuð á, það eru ótrúlega skemmtileg ævintýri í sumrinu þínu og þetta sumar verður svo sannarlega mikið ævintýrið og þú munt elska hversdagsleikann, það er akkúrat það sem að gerir allt svo spennandi!

Lífið er yndislegt, þín Sigga Kling

Frægar steingeitur: Guðjón Pétur Lýðsson markakóngur, Svava Johansen í Sautján, Ingibjörg Sólrún Gísladóttir, dr. Kristín Ólafsdóttir, Jón Gnarr, Elvis Presley, Gunnar Þórðarson, Tómas Guðbjartsson læknahetja, Lovísa Tómas, Dorrit Moussaieff forsetafrú, Þuríður Blær Jóhannsdóttir, leikkona og Reykjavíkurdóttir, Jesús og Simmi á Fabrikkunni.


Tengdar fréttir

Maíspá Siggu Kling – Vog: Hafðu skýr skilaboð í ástinni

Elsku Vogin mín. Þú átt eftir að fara á svo skemmtilegu brokki inn í sumarið. Það er svo margt að gerast hjá þér að það er eins og þú sért stödd í lest, horfir út um gluggann og sjáir lífið og umhverfið þjóta fram hjá þér á fullu spani.

Maíspá Siggu Kling – Hrútur: Notaðu stressið sem orkugjafa

Elsku hjartans kraftmikli og þrjóski Hrúturinn minn. Það er búin að vera sérlega mikil spenna hjá þér og þér hefur fundist eins og þú hafir ekki framkvæmt nóg eða gert allt sem þú ætlaðir þér að gera og þar af leiðandi er einhver smá pirringur á sveimi í kringum þig.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×