Tíska og hönnun

Magnea kynnir nýja línu

Stefán Árni Pálsson skrifar
Magnea Einarsdóttir.
Magnea Einarsdóttir. vísir/valli
Fatamerkið MAGNEA kynnir nýja línu á HönnunarMars í Dansverkstæðinu við Skúlagötu á laugardaginn í samstarfi við Eskimo Models, MAC, ÍSTEX, Ölgerðina, og Label. M.

Línan er í takt við fyrri verkhönnuðarins þar sem fersk nálgun á prjón og íslenska ull hefur verið í aðalhlutverki sem og áhugaverð blöndun hráefnisins við andstæð efni.    

Viðburðurinn verður aðeins þetta eina kvöld og eru allir velkomnir að kíkja við. Magnea Einarsdóttir er stofnandi íslenska fatamerkisins MAGNEA.

Hún er útskrifuðúr fatahönnun frá Central St. Martins í London og hefur getið sér gott  orð bæði hérlendis og erlendis fyrir hönnun sína.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×