Handbolti

Magdeburg missti af þriðja sætinu

Geir Sveinsson.
Geir Sveinsson. vísir/getty
Lærisveinar Geirs Sveinssonar hjá Magdeburg fengu óvænt á baukinn í þýska boltanum í dag.

Þá mætti TuS N-Lübbecke í heimsókn og vann sannfærandi sigur, 26-32. Staðan í hálfleik var 12-18.

Gabor Langhans var markahæstur í liði Lübbecke með níu mörk. Austurríkismaðurinn skoraði mest fyrir Madgdeburg eða sex mörk.

Magdeburg hefði getað komist upp í þriðja sæti deildarinnar en situr áfram í fjórða sætinu eftir tapið.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×