Handbolti

Mætast Guðmundur og Dagur í úrslitaleik?

Guðmundur verður væntanlega hress
Guðmundur verður væntanlega hress
Undanúrslitin í þýsku bikarkeppninni í handbolta fara fram um helgina og venju samkvæmt er spilað í Hamborg. Undanúrslit fara fram í dag og úrslitaleikurinn er á morgun.

Lið Guðmundar Guðmundssonar, Rhein-Neckar Löwen, mætir Flensburg í fyrri leik dagsins klukkan 13.00.  Svo er komið að liði Dags Sigurðssonar, Füchse Berlin, klukkan 16.00 en Berlin spilar gegn Melsungen.

Úrslitaleikurinn er svo klukkan 13.00 á morgun og spurning hvort við fáum uppgjör hjá Guðmundi og Degi?

Allir leikirnir verða í beinni útsendingu á Stöð 2 Sport.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×