Sport

Maður skotinn fyrir utan heimavöll Kúrekanna

Atvikið átti sér stað fyrir utan þennan glæsilega völl.
Atvikið átti sér stað fyrir utan þennan glæsilega völl. vísir/getty
Það sauð upp úr á bílastæðinu eftir leik Dallas Cowboys og New England Patriots í NFL-deildinni í gær.

Átök brutust þá út eftir leikinn sem enduðu með því að maður var skotinn.

Sá liggur nú þungt haldinn á sjúkrahúsi og óvíst hvort hann lifi af á þessari stundu.

Hinn grunaði skotmaður var handtekinn en hann var einnig meiddur. Hermt er að hann hafi meitt sig er hann reyndi að flýja af vettvangi.

Það er ekki algengt að mikið gangi á utan vallar í NFL-deildinni en það hefur verið að breytast í vetur.

Fyrr í vetur var maður laminn illa út á bílastæði eftir heimaleik hjá San Francisco 49ers.

NFL



Fleiri fréttir

Sjá meira


×