Innlent

LÖKE-málið: Mun fara fram á skaðabætur frá ríkinu

Sunna Kristín Hilmarsdóttir skrifar
Gunnar Scheving Thorsteinsson, lögeglumaður.
Gunnar Scheving Thorsteinsson, lögeglumaður. Vísir/Valli
Aðalmeðferð í LÖKE-málinu svokallaða fór fram í Héraðsdómi Reykjavíkur í dag. Lögreglumaðurinn Gunnar Scheving Thorsteinsson er í málinu ákærður fyrir að hafa komið upplýsingum sem áttu að fara leynt til þriðja aðila.

Gunnar var í fyrstu einnig ákærður fyrir að fletta 45 konum upp í upplýsingakerfi lögreglunnar, LÖKE, en fyrir aðalmeðferð féll ríkissaksóknari frá þeim ákæruleið þar sem sakfelling var ekki talin líkleg.

Áætlaður tími fyrir aðalmeðferðina samkvæmt dagskrá var 6 klukkutímar en að sögn Garðars Steins Ólafssonar, lögmanns Gunnars, tók hún aðeins 30 mínútur.

„Saksóknari hefur fallið frá kröfu um allan málskostnað, sem venjulega er gert eftir sýknudóm. Allur málskostnaður fellur því á ríkið sama hvernig málið fer,“ segir Garðar í samtali við Vísi. Þá segir að hann að ekki sé heldur gerð refsikrafa af hálfu ákæruvaldsins, ef lögreglumaðurinn verður sakfelldur, sem sýni viðurkenningu á því að meint brot sé smávægilegt.

Aðspurður hvort að Gunnar muni fara fram á skaðabætur frá ríkinu segir Garðar svo vera.

„Já, það hefur alltaf staðið til að fara fram á skaðabætur vegna rangra sakargifta," segir Garðar.

En býst hann við að slíkt mál væri fyrir dómstóla eða að samið yrði um skaðabætur?

„Það væri mjög undarlegt ef þetta færi fyrir dóm þar sem ákæruvaldið hefur viðurkennt að skjólstæðingur minn var ekki sekur um það sem hann var ákærður fyrir í fyrstu,“ segir hann og vísar þar til fyrri ákæruliðarins um meintar ólöglegar uppflettingar lögreglumannsins í upplýsingakerfi lögreglunnar sem felldur var niður.

Þá segir Garðar að allar líkur séu einnig á því að lögreglumaðurinn muni snúa aftur til starfa en honum var vikið tímabundið frá störfum eftir að málið kom upp fyrir tæpu ári.

„Það þarf auðvitað bíða eftir formlegri niðurstöðu í málinu en verklagsreglur lögreglunnar og fordæmi gefa ekki annað til kynna en að hann muni snúa aftur til starfa,“ segir Garðar.


Tengdar fréttir

Löke-málið: Konunum fækkaði um fjórar

Héraðsdómur Reykjavíkur mun taka sér allt að fjórar vikur til þess að taka afstöðu til frávísunarkröfu lögreglumannsins sem ákærðu er fyrir brot í opinberu starfi í Löke-málinu svokallaða.

LÖKE lokað

Lögreglumanninum er gefið að sök að hafa flett upp persónulegum upplýsingum 41 konu.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×