Innlent

Lögreglan biður Hafnfirðinga um að sýna stillingu

Ásgeir Erlendsson skrifar
Töluverður ótti hefur skapast á meðal íbúa Hafnarfjarðar eftir að fréttir bárust af því á mánudag að maður hafi ráðist öðru sinni gegn konu á heimili hennar í Móabarði. Aðstoðaryfirlögregluþjónn biður fólk um að halda ró sinni og treysta lögreglu til að tryggja öryggi borgaranna.

„Við finnum það að það er mikill ótti hjá fólki sem skiljanlegt er. Það er að bregðast við með að safna sér einhverjum áhöldum eða bareflum jafnvel til þess að taka á móti einhverri ógn sem við teljum ekki vera. Fólk er að draga niður, slökkva ljós og svarar ekki dyrabjöllum þegar ættingjar eða vinir eru að koma,“ segir Margeir Sveinsson, aðstoðaryfirlögregluþjónn.

Rannsókn málsins er í fullum gangi en lögreglan getur lítið tjáð sig um einstaka atriði þar sem hún er á viðkvæmu stigi en lögreglan vill þó koma þessum upplýsingum  til almennings:

„Sýna stillingu og lögreglan meti það þannig að það er ekki ástæða til að fara út í svona aðgerðir hjá fólki. Ef að lögreglan telur um einhverja almannahættu eða að fjölskyldur, einstaklingar eða hópar séu í einhverri hættu þá bregðumst við við því með einhverjum ráðstöfunum, með auknu eftirliti eða höfum samskipti við fólkið sem um ræðir.“

Ýmsar sögusagnir hafa farið af stað um málið sem eru víðs fjarri sannleikanum og Margeir segir mikilvægt að lögreglan haldi almenningi upplýstum.

„Það er skiljanlegt að fólk er óttaslegið og að sjálfsögðu þarf lögreglan að grípa fyrr inn í. Við stjórnum kannski ekki umfjölluninni nema þá að grípa inn og koma upplýsingum til fólks og reyna svona aðeins að halda öllum upplýstum.“


Tengdar fréttir

Óttaslegnir íbúar vígbúast í Móabarði

Óhugur er í íbúum Móabarðs eftir alvarlegar árásir í götunni. Menn hafa gripið til varúðarráðstafana og eru undrandi yfir að lögregla yfirheyri þá ekki þar sem þeir hljóti að liggja undir grun. Engar nýjar vísbendingar, segir lög

Konan nýtur nú verndar

Grunur leikur á að sami maður hafi í tvígang ráðist á konu á heimili hennar í Móabarði í Hafnarfirði.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×