Enski boltinn

Liverpool og Man Utd fóru illa að ráði sínu | Sjáðu mörkin

Ingvi Þór Sæmundsson skrifar
Nathan Aké potar boltanum yfir línuna og tryggir Bournemouth öll stigin.
Nathan Aké potar boltanum yfir línuna og tryggir Bournemouth öll stigin. vísir/getty
Liverpool og Manchester United riðu ekki feitum hesti frá viðureignum sínum í ensku úrvalsdeildinni í gær.

Liverpool komst tvívegis tveimur mörkum yfir gegn Bournemouth en tapaði samt, 4-3.

Liverpool var 0-2 yfir í hálfleik þökk sé mörkum Saidos Mané og Divocks Origi. Callum Wilson minnkaði muninn úr vítaspyrnu á 56. mínútu en átta mínútum síðar skoraði Emre Can þriðja mark Liverpool með góðu skoti.

Á 72. mínútu var James Milner bókstaflega hársbreidd frá því að koma Liverpool í 1-4 en marklínutæknin sýndi að boltinn var millimetrum frá því að vera allur inni eftir hornspyrnu Milners.

Þetta reyndist vera snúningspunkturinn í leiknum. Varamaðurinn Ryan Fraser minnkaði muninn í 2-3 á 76. mínútu og tveimur mínútum síðar sendi hann boltann á Steve Cook sem jafnaði metin. Það var svo annar varnarmaður, Nathan Aké, sem skoraði sigurmark Bournemouth á 93. mínútu.

Leighton Baines skorar úr vítaspyrnunni og tryggir Everton stig.vísir/getty
Man Utd missti einnig niður góða stöðu gegn Everton á útivelli. Niðurstaðan 1-1 jafntefli.

Zlatan Ibrahimovic kom Man Utd yfir á 42. mínútu þegar hann nýtti sér skógarferð Maarten Stekelenburg, markvarðar Everton.

Maraoune Fellaini reyndist svo örlagavaldurinn á sínum gamla heimavelli. José Mourinho setti hann inná á 85. mínútu og fjórum mínútum síðar braut Fellaini klaufalega á Idrissa Gueye innan vítateigs og Michael Oliver, dómari leiksins, benti á punktinn.

Leighton Baines skoraði úr vítinu og tryggði Everton stig.

Mörkin úr leikjunum tveimur má sjá hér að neðan.

Bournemouth 4-3 Liverpool Everton 1-1 Man Utd

Tengdar fréttir

Segir stöðu Manchester United ekki endurspegla spilamennskuna

Jose Mourinho, knattspyrnustjóri Manchester United, segir ósanngjarnt að horfa á úrslit undanfarinna leikja í stað þess að horfa á hvernig spilamennska liðsins hefur verið eftir fjórða jafntefli liðsins í síðustu fimm leikjum gegn Everton í dag.°

Klopp: Verðskuldaður sigur hjá Bournemouth

Jurgen Klopp, knattspyrnustjóri Liverpool, var hreinskilinn er hann sagði sigur Bounemouth hafa verið verðskuldaðan eftir að lærisveinar hans köstuðu frá sér tveggja marka forskoti.

Mourinho vill að aðrir þjálfarar fái sömu meðferð

Jose Mourinho, knattspyrnustjóri Manchester United, hefur fengið nóg af boðum og bönnum enska knattspyrnusambandsins eftir að hann tók út leikbann í leik Manchester United og West Ham í deildarbikarnum á miðvikudaginn.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×