Enski boltinn

Liverpool að næla í markahæsta leikmann Newcastle

Ingvi Þór Sæmundsson skrifar
Wijnaldum fagnar einu af þeim 11 mörkum sem hann skoraði í ensku úrvalsdeildinni á síðasta tímabili.
Wijnaldum fagnar einu af þeim 11 mörkum sem hann skoraði í ensku úrvalsdeildinni á síðasta tímabili. vísir/getty
Flest bendir til þess að hollenski landsliðsmaðurinn Georginio Wijnaldum sé á leið til Liverpool frá Newcastle United.

Samkvæmt heimildum Sky Sports hefur Newcastle samþykkt 25 milljóna punda tilboð Liverpool í hinn 25 ára gamla Wijnaldum.

Hollendingurinn var markahæsti leikmaður Newcastle á síðasta tímabili. Mörkin ellefu sem hann skoraði dugðu þó ekki til að halda liðinu í ensku úrvalsdeildinni.

Wijnaldum kom til Newcastle síðasta sumar frá PSV Eindhoven en þar áður lék hann með Feyenoord.

Wijnaldum hefur skorað sex mörk í 30 landsleikjum fyrir Holland. Hann var hluti af hollenska liðinu sem vann til bronsverðlauna á HM 2014.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×