Golf

Lítt þekktur Bandaríkjamaður leiðir eftir fyrsta hring

Brooks Koepka er að leika vel þessa dagana.
Brooks Koepka er að leika vel þessa dagana. Getty
Bandaríkjamaðurinn Nicholas Thompson leiðir á Farmers Insurance mótinu eftir fyrsta hring en hann lék norðurhluta Torrey Pines á átta höggum undir pari í gær.

Nafni hans Michael Thompson er í öðru sæti á sjö undir pari en Cameron Tringale og Brooks Koepka, sem sigraði á Phoenix Open um síðustu helgi, koma þar á eftir á sex höggum undir pari.

Þá eru fleiri stór nöfn sem byrjuðu vel á Torrey Pines vellinum en þar má nefna Ian Poulter á fimm undir pari og Rickie Fowler sem er á þremur höggum undir pari eftir fyrsta hring.

Phil Mickelson hefur tímabilið ekki vel en hann náði ekki niðurskurðinum á Phoenix Open. Hann er meðal keppenda um helgina en eftir að hafa klárað 15 holur á fyrsta hring er hann neðarlega á skortöflunni á einu höggi yfir pari.

Það er þó skárra heldur framlag Tiger Woods í gær en hann dró sig úr keppni eftir tólf holur eftir að gömul bakmeiðsli tóku sig upp. Hann var þá á tveimur höggum yfir pari og virtist einnig eiga við sömu erfileika að stríða í stutta spilinu og hafa plagað hann að undanförnu.

Allir hringirnir á Farmers Insurance verða í beinni útsendingu á Golfstöðinni en útsending frá öðrum hring hefst klukkan 21:00 í kvöld.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×