Lífið

Litríkt og skemmtilegt hjá dj. flugvél og geimskip

Gyða Lóa Ólafsdóttir skrifar
Vísir/Vilhelm
Í íbúðinni sem er opin og björt kennir svo sannnarlega ýmissa grasa en þar má meðal annars reka augun í tvo ketti, verðlaunafisk, fjölda listaverka og skemmtilega skrautmuni sem koma hvaðanæva.

Einnig er talsverður fjöldi af fjölbreyttum pottaplöntum í íbúðinni sem skapa skemmtilega safarístemningu og Steinunn hefur skrifað niður nokkra af sínum uppáhaldshlutum á lítinn miða sem hún fer yfir á meðan hún röltir um íbúðina og tekur til við að segja frá sínum uppáhaldshlutum og uppáhaldsstað.

Á miðju stofugólfinu er stór hringlaga rauð motta. 

„Þetta er uppáhaldsstaðurinn minn. Hér er hægt að gera jógaæfingar á morgnana og ýmislegt,“ segir hún og bætir við að mottan sé einnig vinsæl í partíum.  „Ég held mig stundum á mottunni.“ 





„Á útgáfutónleikunum mínum bað ég alla um að mæta með heimagerða fiska. Einn gaurinn kom með þennan fisk og hann fékk verðlaun. Mér fannst hans svo geðveikt flottur. Þetta er pomeranian-fiskur og ég elska pomeranian-hunda,“ segir Steinunn og tekur skýrt fram að fiskurinn sé hennar allra mesti uppáhaldshlutur.









Barinn er smíðaður af listamanninum Helga Þórssyni og stendur í stofunni.

„Stundum erum við með reykvél hjá honum og þá kemur eins og vitaljós úr toppnum á honum.“







Brúnn handsmíðaður hundur geymir vítamín húsráðenda en hann keypti Steinunn í Kolaportinu.

„Hann er svo skemmtilegur á svipinn og geymir alltaf vítamínin. Konan sem seldi mér hann stakk upp á að það væri hægt að geyma síróp eða vítamín í honum.“



„Ég fékk gítarinn í jólagjöf frá Þráni vini mínum og ég tek hann alltaf með mér hvert sem ég fer af því að ef það er einhvers staðar ekki gaman að vera eða einhver er ekki í góðu skapi þá er fólk komið í gott skap eftir svona tvær mínútur þegar maður spilar á hann,“ segir Steinunn á meðan hún spilar nokkra vel valda tóna.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×