Litlar jólakringlur

Vísir Jólavefur 01. nóvember 2011 03:13
Litlar jólakringlur
300 g hveiti
225 g smjör
1 msk. sykur
rifinn börkur af einni sítrónu
6 msk. þeyttur rjómi
vatn og sykur til penslunar


Smjör og hveiti hrært saman. Sykur og sítrónubörkur settur í og síðan rjóminn. Hnoðað. Deigið rúllað í frekar þunnar lengjur sem úr eru mótaðar kringlur. Penslað með vatni og perlusykri stráð yfir. Bakað við 225C í 8­10 mínútur. (Kringlurnar eiga að vera ljósar.)

Fleiri fréttir - Jólavefur

Þú ert hér: Forsíða / Jólavefur / Litlar jólakringlur