Erlent

Línur skýrast frekar

Guðsteinn Bjarnason skrifar
Trump hefur eitthvað dregið úr glannalegum yfirlýsingum sínum undanfarið.
Trump hefur eitthvað dregið úr glannalegum yfirlýsingum sínum undanfarið. vísir/EPA
Enn einum „ofurþriðjudeginum“ er lokið með nokkuð afgerandi sigri þeirra Hillary Clinton og Donalds Trump. Varla er lengur möguleiki á öðru en að þau muni keppa um forsetaembætti Bandaríkjanna í kosningunum í nóvember.

Kosið var í fimm ríkjum og varð Trump efstur meðal repúblikana í þeim öllum en meðal demókrata vann Hillary sigur í fjórum en Sanders einum.

Bernie Sanders á vart raunhæfan möguleika lengur gegn Clinton. Hún á að vísu enn eftir að tryggja sér atkvæði rúmlega 200 fulltrúa á landsþingi flokksins í júlí, en Sanders stendur mun verr að vígi. Hann á enn eftir að tryggja sér meira en þúsund fulltrúa.

Skoðanakannanir benda til þess að Clinton muni sigra Trump í forsetakosningum með nokkrum yfirburðum.

Á landsvísu mælist Clinton nú með nærri 50 prósenta fylgi en Trump með rétt um 40 prósent. Enn er þó hálft ár í kosningar og munurinn milli þeirra hefur stundum verið lítill.

Bandaríski tölfræðingurinn Nate Silver, sem jafnan fylgist grannt með kosningahegðun í Bandaríkjunum, bendir reyndar á að sigurganga Trumps undanfarið stafi ekkert endilega af því að þátttakendur í forkosningum séu teknir að flykkjast að baki Trump, heldur frekar af því að andstæðingar Trumps nenni ekki lengur að mæta á kjörstað.

Þeir geti, sumir hverjir að minnsta kosti, hvorki hugsað sér að kjósa Ted Cruz eða John Kasich, og annað er ekki í boði.

Kosningaþátttakan í forkosningum Repúblikanaflokksins hefur að minnsta kosti minnkað mjög á síðustu vikum. Í fyrstu forkosningunum í febrúar var þátttakan um 25 prósent en hefur verið innan við tíu prósent í þeim síðustu.

Forkosningunum lýkur ekki fyrr en 14. júní en stærsti dagurinn á lokasprettinum verður 7. júní, þegar kosið verður í Kaliforníu og fimm öðrum ríkjum samtímis. Það verður síðasti „ofurþriðjudagurinn“, en ekki er þó víst að úrslitin ráðist endanlega fyrr en á landsþingum flokkanna í júlí.

Þeir Kasich og Cruz eru enn að vonast til þess að þeim takist að koma í veg fyrir að Trump nái einföldum meirihluta, þannig að fulltrúum á landsþinginu verði heimilt að greiða öðrum atkvæði sitt.

Fréttin birtist fyrst í Fréttablaðinu 28. apríl.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×