Formúla 1

Lewis Hamilton vann í Texas

Kristinn Ásgeir Gylfason skrifar
Lewis Hamilton vann örugglega í Austin, Texas í dag.
Lewis Hamilton vann örugglega í Austin, Texas í dag. Vísir/Getty
Lewis Hamilton vann sína 50. keppni í Formúlu 1 í dag. Liðsfélagi hans hjá Mercedes Nico Rosberg varð annar og Daniel Ricciardo á Red Bull varð þriðji.

Hamilton náði í 25 stig í dag, og tókst að minnka forystu Rosberg í heimsmeistarakeppni ökumanna niður í 26 stig. Baráttan harðnar þegar þrjár keppnir eru eftir.

Ræsingarnar hafa valdið Hamilton vandræðum það sem af er tímabilinu. Í dag varð breyting þar á, Rosberg hins vegar missti Ricciardo fram úr sér á leiðinni út úr fyrstu beygju.

Valtteri Bottas á Williams og Nico Hulkenberg á Force India komu inn á þjónustusvæði í lok fyrsta hrings. Bottas var með sprungið dekk en Hulkenberg kom inn til að hætta keppni.

Ricciardo og Raikkonen komu inn á níunda hring til að skipta ofur-mjúku dekkjunum undan fyrir mjúk dekk. Mercedes brást við og tók sína menn inn í kjölfarið og þeir settu hörð dekk undir bíl Rosberg. Hamilton tók hins vegar annan gang af mjúkum dekkjum undir á 12. hring.

Kimi Raikkonen leið fyrir mistök þjónustuliðsins í dag.Vísir/Getty
Verstappen gerði svakaleg mistök á 28. hring þegar hann tók þjónustuhlé. Red Bull liðið var ekki búið að kalla Verstappen inn og þess vegna var enginn reiðubúinn að taka á móti unga ökumanninum. Bíll Verstappen gaf sig svo á 30. hring og hann reyndi að rúlla inn á þjónustusvæðið en komst ekki nema hálfa leið og stafrænn öryggisbíll var virkjaður.

Hamilton og Rsoberg tóku sín síðustu þjónustuhlé undir stafræna öryggisbílnum.

Baráttan harðnaði ekkert á milli Rosberg og Hamilton enda Hamilton í kringum 9 sekúndum æa undan og hélt því forskoti bara við það sem eftir lifði keppni.

Raikkonen kom inn á þjónustusvæðið á 39. hring og fór af stað þegar honum var gefið grænt ljós. Þá var eitt dekk enn laust. Raikkonen gat ekki annað en lagt bílnum og hætt keppni.

Felipe Massa og Fernando Alonso lentu í samstuði. Massa þurfti í kjölfarið að takaþjónustuhlé á næst síðasta hring keppninnar til að taka lekandi dekk undan Williams bílnum.

Rosberg sótti aðeins á Hamilton á loka hringjum keppninnar en það dugði ekki til og Hamilton kom fyrstur í mark.

Hér að neðan má sjá öll úrslit helgarinnar.


Tengdar fréttir

Mercedes fljótastir á föstudegi í Bandaríkjunum

Lewis Hamilton á Mercedes var fljótastur á fyrri æfingu dagsins fyrir bandaríska kappaksturinn sem fram fer um helgina í Austin, Texas. Nico Rosberg á Mercedes varð fljótastur á seinni æfingunni.

Hamilton: Ég er bjartsýnn á góða ræsingu

Lewis Hamilton hóf lokasprettinn í eltingarleiknum við liðsfélaga sinn í heimsmeistarakeppni ökumanna með því að tryggja sér ráspól í Texas. Hver sagði hvað eftir tímatökuna?

Hamilton á ráspól í Bandaríkjunum

Lewis Hamitlon á Mercedes var fljótastur í tímatökunni fyrir bandaríska kappaksturinn sem fram fer á morgun. Nico Rosberg á Mercedes varð annar og Daniel Ricciardo á Red Bull þriðji.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×