Innlent

Leikskólakennarar semja

Sunna Karen Sigurþórsdóttir skrifar
Hús ríkissáttasemjara.
Hús ríkissáttasemjara.
Félag stjórnenda leikskóla og Samband íslenskra sveitarfélaga skrifuðu undir nýjan kjarasamning í húsakynnum ríkissáttasemjara um klukkan þrjú í dag. Þetta kemur fram í tilkynningu frá Kennarasambandi Íslands.

Kjarasamningurinn gildir frá 1.maí 2014 og er til þrettán mánaða. Innihald samningsins verður kynnt félagsmönnum FSL á næstu dögum. Þá fer atkvæðagreiðsla um samninginn fram í kjölfarið en henni á að vera lokið eigi síðar en 15. september.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×