Enski boltinn

Leikmenn Man. Utd sendir út á bílastæði til að teygja

Henry Birgir Gunnarsson skrifar
Mourinho er ekkert að gefa neinn afslátt.
Mourinho er ekkert að gefa neinn afslátt. vísir/getty
Leikmenn Man. Utd hanga ekki í símanum í allan dag að bíða eftir leiknum gegn Liverpool á eftir.

Stjóri liðsins, Jose Mourinho, fór með liðið út á bílastæðið hjá hóteli liðsins í dag og lét leikmenn teygja.

Þetta er ekki í fyrsta sinn sem Mourinho rekur stórstjörnur sínar út á bílastæði í vetur.

Hann gerði það líka fyrir leik liðsins gegn Northampton í bikarnum í september.

Strákarnir virtust taka þessu ágætlega og teygðu samviskusamlega á bílastæðinu. Óhætt er þó að segja að aðrir gestir hótelsins hafi rekið upp stór augu.

Sjá má skemmtilegar myndir af þessu í frétt Sky Sports hér.


Tengdar fréttir




Fleiri fréttir

Sjá meira


×