Enski boltinn

Le Tissier spáir því að Liverpool endi á undan United

Óskar Ófeigur Jónsson skrifar
Vísir/Getty
Matt Le Tissier, fyrrum leikmaður Southampton og núverandi knattspyrnuspekingur hjá Sky Sports, var fenginn til þess að spá fyrir um hvaða lið munu enda í sjö efstu sætunum í ensku úrvalsdeildinni í vor.

Öll liðin inn á topp sjö unnu leiki sína í vikunni og það er útlit fyrir spennandi keppni þótt að Chelsea sé í mjög góðri stöðu í toppsætinu.

„Baráttan um efstu fjögur sætin er mjög jöfn og ég sé alveg fyrir mig að nokkur lið ættu enn möguleika fyrir lokaumferðina," sagði Matt Le Tissier í spá sinni á Sky Sports.

1. sæti Chelsea

„Ég sé engan fyrir mér ná Chelsea-liðinu úr þessu. Þeir eru of stöðugur til þess auk þess að vera með fimm stiga forskot og leik inni. City-liðið er ekki nógu gott til þess að ná þeim," sagði Matt Le Tissier.

2. sæti Manchester City

„Ég spáði þeim reyndar titlinum fyrir tímabilið en þeir hafa ekki verið nógu stöðugir. Þeir geta ekki náð Chelsea en eru hinsvegar nógu góðir til þess að halda hinum liðunum fyrir aftan sig," sagði Matt Le Tissier.

3. sæti Arsenal

„Þeir búa að reynslu Arsene Wenger um að vera alltaf meðal fjögurra efstu. Ég sé þá ná því einu sinni enn þótt að liðið sé ekki nógu gott til að berjast um titilinn," sagði Matt Le Tissier.

4. sæti Liverpool

„Liðið hans Brendan Rodgers er komið á gott skrið og ég tel að þeir muni hafa betur á móti United og Southampton í baráttunni um fjórða sætið. Það er ekkert lið í bestu deildum Evrópu búið að ná í fleiri stig á nýja árinu og sjálftraustið sem er komið inn í liðið ætti að hjálpa þeim að landa Meistaradeildarsætinu," sagði Matt Le Tissier.

5. sæti Southampton

„Eftir leikinn á móti Chelsea þá á Southampton átta leiki sem þeir eiga að geta unnið. Liðið var dauft í nokkrum leikjum en sigurinn í vikunni hjálpar liðinu mikið og nú fá þeir gott frí til þess að safna kröftum fyrir lokasprettinn," sagði Matt Le Tissier.

6. sæti Manchester United

„Þeir voru mjög heppnir á móti Newcastle og David de Gea hreinlega hélt þeim inn í leiknum. Það var mjög skrýtið hjá Louis van Gaal að tala um að þetta hefði verið besta frammistaða liðsins á útivelli. Ég tel að United endi neðar en Southampton og það er ekki síst byggt á þeim leikjum sem liðin eiga eftir. Þeir eiga eftir að mæta öllum liðunum inn á topp sjö fyrir utan Southampton," sagði Matt Le Tissier.

7. sæti Tottenham

„Þeir eiga eftir erfiða leiki og meira að segja útileikurinn á móti QPR í næstu umferð verður þeim erfiður. Þeir eiga eftir að fara í heimsókn til Manchester United og Southampton og ég þá ekki tryggja sér Meistaradeildarsætið í vor," sagði Matt Le Tissier.

Það er annars hægt að sjá alla spá Matt Le Tissier hér.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×