Handbolti

Lazarov færir sig um set

Ingvi Þór Sæmundsson skrifar
Lazarov varð markakóngur HM 2017 með 50 mörk.
Lazarov varð markakóngur HM 2017 með 50 mörk. vísir/getty
Makedónska stórskyttan Kiril Lazarov hefur gert tveggja ára samning við Nantes í Frakklandi.

Lazarov, sem verður 37 ára í maí, gengur til liðs við Nantes í sumar en hann kemur frá spænska stórveldinu Barcelona.

Lazarov hefur verið í hópi bestu handboltamanna heims í mörg ár.

Hann hefur leikið með Barcelona frá árinu 2013 og unnið allt sem hægt er að vinna með liðinu, þ.á.m. Meistaradeild Evrópu 2015. Sama ár varð Lazarov fyrsti leikmaðurinn til að skora 1000 mörk í Meistaradeildinni.

Lazarov er fyrirliði makedónska landsliðsins. Hann varð markakóngur HM 2017 með 50 mörk.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×