Innlent

Laugardalslaug lokuð næstu daga

Vegna framkvæmda við búningsklefa verður Laugardalslaug lokuð föstudaginn 8. mars og laugardaginn 9. mars.

Framkvæmdir við laugina undanfarna mánuði hafa ekki farið framhjá sundlaugagestum. Aðstaða í búningsklefum og sturtum hefur verið bágborin miðað við það sem gestir voru vanir fyrir framkvæmdir. Þannig hafa karlar og konur deilt gamla kvennabúningsklefanum sem skipt var til helminga.

Á sunnudaginn verður opnað að nýju klukkan 08:00 og útlit fyrir betri tíð. Þannig færist afgreiðslan aftur í nýja hlutann en gengið hefur verið inn á norðurhliðinni undanfarna mánuði. Nýuppgerður búningsklefi verður klár fyrir konurnar en karlarnir hafa hins vegar aðgang að báðum útiklefunum.

Þá verða rafrænar skápalæsingar teknar í notkun á kvennaböðum.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×