Handbolti

Landsliðskonur sviknar um fjölda marka í Grafarvogi í gærkvöldi

Óskar Ófeigur Jónsson skrifar
Landsliðskonurnar Unnur Ómarsdóttir og Anna Úrsúla Guðmundsdóttir.
Landsliðskonurnar Unnur Ómarsdóttir og Anna Úrsúla Guðmundsdóttir. Vísir/Vilhelm
Gróttukonur unnu flottan sigur á Fjölni í Olís-deild kvenna í handbolta í Dalhúsum í gær og fylgja Haukum eftir í baráttunni um deildarmeistaratitilinn.

Grótta vann leikinn 31-17 eftir að hafa 14-9 yfir í hálfleik. Grótta er nú einu stigi á eftir toppliði Hauka þegar aðeins tvær umferðir eru eftir af deildarkeppninni.

Vísir sagði frá úrslitum og markaskorunum í gærkvöldi eftir að hafa fengið leikskýrsluna senda frá Fjölni.

Það hefur seinna komið í ljós að markaskorar Gróttuliðsins voru allt aðrir en þar kom fram. Leikskýrslan er komin alla leið inn í úrslitakerfi Handknattleikssambands Íslands þrátt fyrir að vera kolröng. Hana má sjá hér þótt að ekki sé hægt að taka mark á henni.

Ritari leiksins klikkaði ekki bara á einu eða tveimur mörkum heldur var skráning hans í svo miklu tjóni að það er hægt hreinlega að efast um á hvaða leik hann var í gærkvöldi.

Samkvæmt leiksskýrslunni voru þær Unnur Ómarsdóttir og Anna Úrsúla Guðmundsdóttir skráðar með eitt mark hvor eða samtals tvö mörk. Báðar eru vanar því að skora mun meira í leikjum Gróttu og þær gerðu það líka.

Samkvæmt upplýsingum sem Vísir hefur nú fengið um markaskor landsliðskvennanna tveggja þá vantaði að skrá á þær heil átta mörk í þessum leik í gær.

Anna Úrsúla Guðmundsdóttir og Unnur Ómarsdóttir skoruðu nefnilega báðar fimm mörk í leiknum en fjögur af mörkum þeirra beggja voru skráð á aðra leikmenn í Gróttuliðinu.

Varnartröllið Eva Margrét Kristinsdóttir var skráð með þrjú mörk í leiknum en þau mörk áttu væntanlega að fara á nöfnu hennar Evu Björk Davíðsdóttur sem var skráð með ekkert mark. Eva Margrét spilaði frábæra vörn að vanda en tókst ekki að skora.

Ritarinn var líka rausnarlegur við Þórunni Friðriksdóttur sem var skráð með fjögur mörk en skoraði aðeins eitt mark í þessum leik.

Það er engin opinber tölfræði skráð hjá HSÍ í dag sem óskiljanlegt á árinu 2016 en að það sé ekki einu sinni hægt að treysta markaskráningu á opinberri leiksskýrslu eru mikill vonbrigði.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×