Viðskipti innlent

Landsframleiðslan jókst minna en nam vexti þjóðarútgjalda

Stefán Árni Pálsson skrifar
visir/vilhelm
Landsframleiðslan á fyrstu sex mánuðum ársins 2014 jókst um 0,6% að raungildi borið saman við fyrstu sex mánuði ársins 2013.

Á sama tíma jukust þjóðarútgjöld, sem eru samtala neyslu og fjárfestingar, um 2,8%. Einkaneysla jókst um 4%, samneysla um 1,1% og fjárfesting um 7,8%.

Útflutningur jókst um 3,7% og innflutningur nokkru meira, eða um 9%. Þetta kemur fram í tilkynningu frá Hagstofunni.

Landsframleiðslan á 2. ársfjórðungi 2014, án árstíðaleiðréttingar, jókst um 2,4% frá sama ársfjórðungi fyrra árs en árstíðaleiðrétt landsframleiðsla dróst saman um 1,2% frá 1. ársfjórðungi 2014.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×