Handbolti

Lærisveinar Alfreðs aftur á sigurbraut

Kristinn Páll Teitsson skrifar
Alfreð Gíslason, þjálfari Kiel.
Alfreð Gíslason, þjálfari Kiel. Vísir/getty
Lærisveinar Alfreðs Gíslasonar í THW Kiel unnu sannfærandi 9 marka sigur, 38-29 á Arnóri Þór Gunnarssyni og félögum í Bergischer í þýsku úrvalsdeildinni í kvöld.

Björgvin Páll Gústavsson var ekki í leikmannahóp Bergischer í kvöld en þýsku meistararnir í Kiel eru komnir á sigurbraut á ný eftir óvænt tap gegn Göppingen í síðustu umferð.

Kiel leiddi í hálfleik 19-13 og var sigurinn aldrei í hættu í seinni hálfleik en Arnór náði að komast á blað með tveimur mörkum.

Alexander Petersson var ekki með Rhein-Neckar Löwen í leik liðsins gegn Kielce í Meistaradeild Evrópu í kvöld en Stefán Rafn Sigurmannson komst ekki á blað í liði Löwen.

Þá vann Flensburg sannfærandi sigur á Stuttgart í fyrri leik dagsins í þýsku deildinni í handbolta.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×