Viðskipti innlent

Lækka verð á hverja röð í getraunum um eina krónu

Atli Ísleifsson skrifar
Lækkunin tekur gildi í dag og er gerð með samþykki innanríkisráðuneytisins.
Lækkunin tekur gildi í dag og er gerð með samþykki innanríkisráðuneytisins. vísir/vilhelm
Íslenskar getraunir hafa ákveðið að lækka verð á hverja röð í getraunum (1x2), úr 14 krónum í 13 krónur.

Í tilkynningu frá Íslenskri getspá segir að lækkunin taki gildi í dag og sé gerð með samþykki innanríkisráðuneytisins.

„Ástæða lækkunarinnar er sú að Íslenskar getraunir eru í samstarfi við Sænsku getraunirnar – Svenska Spel og kostar hver röð 1 sænska krónu.

Íslenskar getraunir verða að selja röðina á svipuðu verði og Svíar þar sem vinningsupphæðir eru reiknaðar í sænskum krónum.

Gengi sænsku krónunnar hefur lækkað undanfarið gagnvart íslenskri krónu og því er ráðist í þessa lækkun,“ segir í tilkynningunni, en áfram verður fylgst með þróun gengis krónunnar.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×