Kvikmyndatónskáld safnar fyrir bágstadda Íslendinga 2. október 2009 04:30 Er hálfgerður Þjóðernissinni. Veigar Margeirsson og eiginkona hans, Sigríður Ragna, hafa sett á fót söfnunarsíðu fyrir bágstadda Íslendinga. Hér eru þau með börnum sínum í Los Angeles. „
Íslendingar í útlöndum hafa miklar áhyggjur af ástandinu heima og við, sem búsett erum erlendis, fylgjumst mjög vel með því sem er að gerast,“ segir Veigar Margeirsson, kvikmyndatónskáld í Los Angeles. Hann hefur ásamt eiginkonu sinni, Sigríði Rögnu Jónasdóttur, stofnað söfnunarsíðuna silverliningcharity.org þar sem fólki gefst kostur á að gefa peninga til styrktar bágstöddum Íslendingum. Áætlað er að 1. desember verði í fyrsta sinn gefnir peningar úr sjóðnum en Veigar segir þau hjónin vilja leggja sitt af mörkum til að aðstoða fólk til að halda gleðileg jól. „Við lesum auðvitað fréttir af Íslendingum og aukinni sókn eftir aðstoð ýmissa hjálparsamtaka. Það er skelfilegt að hugsa til þess að sumar íslenskar fjölskyldur eru nánast komnar undir fátæktarmörk.“ Veigar hefur um árabil verið búsettur í Bandaríkjunum og samið tónlist við auglýsingar, stiklur og annað tengt afþreyingariðnaðinum. Hann samdi meðal annars tónlistina við íslensku spennumyndina Köld slóð þar sem Anita Briem fór með eitt aðalhlutverkanna. Hann hefur varið litlum tíma á Íslandi eftir að kreppan skall á. „Hér er auðvitað líka kreppa en fallið heima er svo hratt og gerist svo snöggt að þetta er varla sambærilegt,“ útskýrir Veigar og bætir því að margir Íslendingar sem búi í Bandaríkjunum hafi átt erfitt með að senda peninga heim. Heimasíðan geri því auðveldara um vik. „Fólk má ekki gleyma því að vegna stöðu krónunnar þá getur erlend mynt gert kraftaverk, það þarf ekki margar evrur eða dollara til að ná góðri upphæð,“ útskýrir Veigar. Hann segir að Íslendingar megi aldrei halda að fólkið í útlöndum hafi gleymt þeim. Síður en svo. „Við höfum mjög sterkar taugar til Íslands og erum hálfgerðir þjóðernissinnar. Það hefur síður en svo minnkað eftir kreppuna,“ segir Veigar og tekur fram að auðvitað sé Íslendingum heima frjálst að gefa til söfnunarinnar. Eins og áður segir er heimasíða söfnunarinnar silverliningcharity.org og þar er hægt að nálgast allar upplýsingar um málið. Íslenski reikningur söfnunarinnar er 0142-05-006966 og kennitalan er 060672-3509.freyrgigja@frettabladid.is
Mest lesið Stjörnulífið: Sjóðheit skvísuferð til Ibiza Lífið Oliver Tree látinn 32 ára að aldri Lífið Þórður leikstýrir kvikmyndaútgáfu Dead by Daylight Bíó og sjónvarp 50+: Fólk upplifir sig yngra en áður – og þróunin heldur áfram Áskorun Óboðni sturtugesturinn sextán sentímetra kónguló Lífið Gáfu yfir 50 vinninga í beinni útsendingu Lífið Margaret Kerry er látin Bíó og sjónvarp Ekkert líf að verða hrædd á hverju vori Lífið Jakob Frímann stal senunni í hátískuskyrtu Lífið „Það er ástæða fyrir bólgunni“ Lífið Fleiri fréttir Jakob Frímann stal senunni í hátískuskyrtu Stjörnulífið: Sjóðheit skvísuferð til Ibiza Oliver Tree látinn 32 ára að aldri Gáfu yfir 50 vinninga í beinni útsendingu Krakkatía vikunnar: HM, risaeðlur og naglaklippur Vildi hjálpa öðrum þótt hún vissi að tíminn væri naumur „Það er ástæða fyrir bólgunni“ Óboðni sturtugesturinn sextán sentímetra kónguló Ekkert líf að verða hrædd á hverju vori Fréttatía vikunnar: NASA, Messi og Mette-Marit Stórslasaðist átján ára eftir ölvaðan ökumann: „Braut öll bein á vinstri hliðinni minni“ Myndaveisla: Veðrið leikur við íbúa höfuðborgarsvæðisins Stærstu rauðu flöggin á stefnumótaforritum Gestir geti fengið innsýn í skapandi samfélag Hafnar.hauss Backstreet Boys frumsýna lag nýrrar Hvolpasveitarmyndar Allt að 200 ára veggjakrot fannst við framkvæmdir Marteinn Helgi Sigurðsson er látinn Hefur þegar fengið starfstilboð Hvað veistu um… árið 2010? Lífseigustu mýturnar um offitu: „Það er ekki sjúkdómur að fitna“ Sjö heitustu brúðkaupstrendin í sumar „Ég var löngu tilbúin að giftast honum“ Rassaumhirða karla í sókn Leggja áherslu á liti, gleði og glimmer Segir Weinstein hafa bannað sér að vera lesbía Hætt saman en ennþá vinir Varð ástfanginn á sama tíma og móðir hans kvaddi Lára Clausen lýsir eftir stolnum Mustang Blendnar tilfinningar að fara á vinnumarkað á ný Lofuðu svörtu fólki lækningu en blekktu það til dauða Sjá meira