Innlent

Kvenréttindafélagið varar við kynfæragötun

Viðurkennt er að gata eyru en nú færast gatanir á kynfærum í vöxt
Viðurkennt er að gata eyru en nú færast gatanir á kynfærum í vöxt

Kvenréttindafélag Íslands varar við svokallaðri „kynfæragötun" sem hefur færst í vöxt meðal ungra kvenna að undanförnu.

„Ætla má að klámvæðing samfélagsins sé rót þessarar auknu eftirspurnar. Klámvæðingin hefur síast inn í vitund kvenna jafnt sem karla og kemur t.d. glögglega í ljós í poppmenningunni og í auglýsingum. Klámvæðingin stuðlar að „normaliseringu" kláms og afleiðingum þess, s.s. kaupum á vændi, mansali, o.s.frv. Kynfæragötun getur auk þess haft alvarlegar heilsufarslegar afleiðingar fyrir konur," segir í ályktun sem stjórn Kvenréttindafélagsins sendir frá sér.

Kvenréttindafélag Íslands skorar á heilbrigðisyfirvöld að vera vel á verði, bæði hvað varðar afleiðingar þessara aðgerða svo og leyfisveitingar til handa þeim er framkvæma þær. Þykir félaginu ástæða til þess að hvetja yfirvöld til að gera úttekt á umfangi og eðli þessara aðgerða.

Tengd grein:

Kynfæragötun aldrei vinsælli











Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur.

Fleiri fréttir

Sjá meira


×