Fótbolti

Kvennalandsliðið það sextánda besta í heiminum

Ingvi Þór Sæmundsson skrifar
Íslensku stelpurnar eru með fullt hús stiga í undankeppni EM 2017.
Íslensku stelpurnar eru með fullt hús stiga í undankeppni EM 2017. vísir/eyþór
Íslenska kvennalandsliðið í knattspyrnu er í 16. sæti á nýjum styrkleikalista FIFA sem var gefinn út í dag.

Íslensku stelpurnar hækka um fjögur sæti á listanum þökk sé sigrunum öruggu á Skotlandi og Makedóníu í undankeppni EM 2017.

Ísland er í 9. sæti af Evrópuþjóðum á heimslistanum en var í því ellefta á síðasta lista.

Heimsmeistarar Bandaríkjanna eru enn á toppi heimslistans. Þjóðverjar eru í 2. sæti, Frakkar í 3. sæti og Englendingar í því fjórða. Þrettán efstu þjóðirnar á listanum standa í stað frá því hann var síðast gefinn út.

Skotar, sem Ísland vann 4-0 fyrr í mánuðinum, eru í 21. sæti listans.

Efstu 20 þjóðirnar á heimslista FIFA:

1. Bandaríkin

2. Þýskaland

3. Frakkland

4. England

5. Ástralía

6. Svíþjóð

7. Japan

8. Brasilía

9. Norður-Kórea

10. Kanada

11. Noregur

12. Kína

13. Holland

14. Spánn

15. Sviss

16. Ísland

17. Nýja-Sjáland

18. Ítalía

19. Suður-Kórea

20. Danmörk

Listann í heild sinni má sjá með því að smella hér.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×