KSÍ berst gegn slæmri foreldrahegðun | Sjáðu auglýsinguna Eiríkur Stefán Ásgeirsson skrifar 22. júlí 2014 13:27 Vísir/Pjetur
Knattspyrnusamband Íslands kynnti nýtt verkefni sem ætlað er til baráttu gegn neikvæðri hegðun áhorfenda á knattspyrnuleikjum hér á landi. Átakið heitir „Ekki tapa þér“ og er lýst sem samfélagslegu verkefni. Það miðast að því að útrýma neikvæðri hegðun áhorfenda, ekki síst foreldra, gagnvart leikmönnum og dómurum og þá sérstaklega í yngri flokkum knattspyrnunnar. „Við vildum vekja fólk til umhugsunar um að hegðun áhorfenda á vellinum skiptir miklu máli. Ekki bara gagnvart iðkendum heildur einnig dómurum,“ sagði Þórir Hákonarson, framkvæmdarstjóri KSÍ, á blaðamannafundi í dag. „Börnin læra það sem fyrir þeim er haft og því miður er þetta algengt vandamál um allan heim. Þetta eru börn sem eru að leik og þau eiga að geta notið sín án þess að þola slíka hegðun.“ Þórir ítrekaði einnig að neikvæð hegðun áhorfenda bitni oft á störfum ungra dómara. „Mjög margir dómarar hafa á undanförnum árum farið í gegnum okkar fræðslukerfi og útskrifast sem unglingadómarar. Margir hætta eftir stuttan tíma því þeir lenda í aðstæðum sem eru fólki almennt ekki boðlegar.“ „Við vildum því vekja athygli á þessu og hvetja fólk til að taka sig á - svo allir geti notið leiksins,“ sagði Þórir og bætti við að hugmyndin að átakinu hafi komið frá auglýsingaherferð enska knattspyrnusambandsins sem nefnist Respect. Frekari upplýsingar um átakið má finna á ekkitapa.is, þar á meðal auglýsingu sem var unnin fyrir sjónvarp.
Íslenski boltinn Mest lesið „Auðvitað voru þetta ekki gleðifréttir“ Íslenski boltinn Liverpool nær samkomulagi um Slot Enski boltinn Stólpagrín gert að Terry vegna stjörnustæla hans Enski boltinn Stjarnan skellti tvisvar á Belichick: „Það er eins gott að þetta sé ekki grín“ Sport Leicester í úrvalsdeildina eftir rassskellingu Leeds Enski boltinn „Þá á bara að gefa tilkynningu út af hálfu HSÍ“ Handbolti Aþena sendi sterk skilaboð í fyrsta leik Körfubolti „Það var ekkert annað í hausnum á mér“ Handbolti Rashford: Nú er nóg komið Enski boltinn Þórey Anna mögnuð og Valur sigri frá úrslitum Handbolti Fleiri fréttir Leicester í úrvalsdeildina eftir rassskellingu Leeds Stólpagrín gert að Terry vegna stjörnustæla hans Liverpool nær samkomulagi um Slot Leikmaður Newcastle tók meirapróf Rashford: Nú er nóg komið Finnst De Bruyne betri en Gerrard og Lampard Slot staðfestir að hann vilji taka við Liverpool Einstefna í Brighton Krókur Liverpool á móti bragði Palace á mikilli siglingu Líflausir Liverpoolmenn skrá sig út úr titilbaráttunni Bruno sneri taflinu við gegn botnliðinu Liverpool hefur viðræður við Arne Slot Slapp við rautt þrátt fyrir fólskubrot: „Einhver þarf að útskýra þetta fyrir mér“ Tveir nítján ára handteknir fyrir nauðgun Fyllir Slot upp í tómarúmið sem Klopp skilur eftir sig? Segir sína menn ekki verðskulda Evrópusæti Segir sitt hlutverk að fá leikmenn til að trúa á verkefnið Skytturnar tylltu sér á toppinn með stæl Skorar tíðast allra en missir enn af leikjum Liverpool Segir viðbrögð fjölmiðla til skammar Højlund kvartaði yfir því að Fernandes gæfi ekki nógu oft á sig Heldur tryggð við Aston Villa þrátt fyrir áhuga annarra liða „Sýna að þetta sé Chelsea FC en ekki Cole Palmer FC“ Fannst Pogba týna sjálfum sér eftir að hann varð heimsmeistari Segir að Ten Hag sé búinn að vera Forest vill hljóðupptöku dómaraherbergins frá leiknum gegn Everton Var sagður taka við Liverpool en hefur rætt við West Ham „Kem því ekki í orð hversu léleg frammistaðan var“ Hjólaði alla leið frá Mongólíu til að sjá United spila Sjá meira