Kostar 3.500 að aka hálendisveg austur Garðar Örn Úlfarsson skrifar 25. júní 2013 00:01 Hugsanlegt stæði nýs hálendisvegar með bundið slitlag austur og norður í land. Horft er til þess að norðan Vatnajökuls sé úrkomuminnsta svæði Evrópu.
Greiða þarf 3.500 krónur fyrir að aka hálendisveg austur á land samkvæmt áætlun hóps sem undirbýr vegalagninguna í einkaframkvæmd. Leiðin styttist um 200 kílómetra. Vegurinn á að kosta 5,5 milljarða króna. Ekki á að óska ríkisábyrgðar. „Við teljum okkur bara eiga rétt á þessu,“ segir Sigurður Gunnarsson, hagfræðingur og járnsmiður og einn forvígismanna hóps sem vill hálendisveg norðan Vatnajökuls. Hálendisvegurinn á að ná frá Nýjadal á Þjórsársvæðinu að sunnaverðu og að Kárahnúkum að austanverðu. Tæplega 40 kílómetra leggur yrði einnig norður í land, til dæmis að Svartárkoti í Bárðardal. Sigurður segir að fari allt að óskum verði vegurinn tilbúinn eftir fimm til sex ár. Áætlaður kostnaður sé 5 til 5,5 milljarðar króna. Þessi upphæð fáist til baka á átta til tíu árum með 3.500 króna veggjaldi austur og 2.000 króna gjaldi norður. Vegirnir, samtals um 170 kílómetrar, verði þá eign ríkisins. Sigurður segir akstursleiðina milli Reykjavíkur og Egilsstaða styttast um allt að 230 kílómetra með Vatnajökulsleiðinni. Það skipti gríðarlegu máli varðandi flutningaskostnað og ferðamennsku. „Svo snýst þetta um rétt almennings á að fá að njóta hálendsins. Það er einstök upplifun,“ segir Sigurður. Um þrjátíu kílómetra kafli af hálendisveginum yrði innan Vatnajökulsþjóðgarðs. Ekki er gert ráð fyrir veginum í lögum um þjóðgarðinn þótt Austlendingar hafi sóst eftir því.Björn Ingimarsson, bæjarstjóri Fljótsdalshéraðs, er jákvæður gagnvart nýjum hálendisvegi með bundið slitlag.„Við ræddum hins vegar við bæði innaríkisráðherra og umhverfisráðherra síðustu ríkisstjórnar og fengum vinsamlegar móttökur. Í innaríkisráðuneytinu vóg ekki síst þungt að Suðurlandsvegur getur lokast vegna náttúrhamfara,“ segir Sigurður. Næstu verkefni að sögn Sigurðar eru meðal annars að rannsaka veðurfar og gera mat á umferð og mögulegum opnunartíma vegarins. Boða á til stofnafundar félagsins Hálendisvegar ehf. á næstunni. Hópurinn vill fá sveitarfélögin og helstu stofnanir á svæðinu til liðs við sig. Undirtektirnar segir Sigurður hafa verið bestar hjá stóru sveitarfélögunum. „Minni sveitarfélögin eru hrædd við að þetta tefji vegaframkvæmdir á láglendi. En þetta á engin áhrif að hafa á aðra vegagerð,“ segir Sigurður sem undirstrikar að byggja eigi í veginn einkaframkvæmd. Stuðningur í formi peninga eða ábyrgða verði ekki sóttur til ríkisins. „Ég sé ekki annað en að menn myndu vera jákvæðir ef þetta reynist framkvæmanlegt,“ segir Björn Ingimarsson, bæjarstjóri Fljótsdalshéraðs.
Mest lesið Höfuðborgarsvæðið skalf Innlent Viðbúnaður á slóðum Vítisengla Innlent Katla skelfur Innlent Átta í bílunum fjórum: Sumir alvarlega slasaðir Innlent Taka sig upp á ógnarhraða og smella beltinu af Innlent Mikill viðbúnaður eftir að óþekktur hlutur fannst í sjónum Erlent Salma nýr formaður ungra Miðflokksmanna Innlent Sjúkraflugvél týndist á leið frá Bermúda Erlent Viðvörunarmerki fyrir íslenskt samfélag Innlent Illa brugðið en heill á húfi Innlent Fleiri fréttir Höfuðborgarsvæðið skalf Viðbúnaður á slóðum Vítisengla Katla skelfur Salma nýr formaður ungra Miðflokksmanna „Okkur finnst við vera undanskilin“ Viðvörunarmerki fyrir íslenskt samfélag Taka sig upp á ógnarhraða og smella beltinu af Átta í bílunum fjórum: Sumir alvarlega slasaðir Smella af sér bílbeltunum á ógnarhraða og breytingar í Kerlingarfjöllum Gul viðvörun eftir stóra skriðu Illa brugðið en heill á húfi Handtekinn grunaður um að beita piparúða Lýsa eftir Halldóri Inga „Of margar sögur af vondri meðferð“ Halda hækkunum innan við 2,5 prósent og hætta við lækkun systkinaafsláttar Íbúar gáttaðir eftir ofrukkanir frá Vegagerðinni Aurskriða féll á veginn og honum lokað Starfsmaður Reykjavíkurborgar smitaðist af nóróveiru Heiða í veikindaleyfi Fagfélögin kalla eftir heimild til að slíta kjarasamningum Unglingar bundnir og skildir eftir við heimili Fara fram á 16 ár yfir meintum morðingja Allir sautján frjálsir ferða sinna „Við erum óþolinmóð“ Minni gjaldahækkanir kosti ríkissjóð 2,5 milljarða Þetta eru stæðin sem borgin hefur endurheimt Segir ágreininginn í Landsvirkjun ekki snúast um arðgreiðslur Geri málið tortryggilegt að neita að svara „Við höfum séð mikla aukningu á því á Íslandi“ Íslensk skólastúlka varð fyrir táragasi í París Sjá meira